Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Aðildarviðræður fyrst - ákvörðun um aðild svo
28.3.2009 | 12:17
Það er mikilvægt fyrir þjóðina að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þegar niðurstöður slíkra aðildarviðræðna ligga fyrir er fyrst tími til kominn um að taka ákvörðun um aðild eða aðild ekki.
Hættan við að láta Samfylkinguna leiða aðildarviðræðurnar er sú að Samfylkingin er reiðubúin að ganga í Evrópusambandið nánast hvað sem það kostar.
Því er mikilvægt að það sé Framsóknarflokkurinn sem leiði aðildarviðræðurnar og samningsmarkmið sem Framsóknarflokkurinn hefur sett séu þau skilyrði sem Íslendinga setja sér í viðræðunum.
ESB efst á blaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Seðlabankinn samur við sig - pólitískari enn nokkru sinni
27.3.2009 | 22:56
Seðlabankinn er samur við sig. Pólitískur.
Þetta er ekki "kostnaður" í venjulegum skilningi þess orðs. Þetta er niðurfelling - sem kostar ríkið ekkert. Þetta er niðurfærsla sem tryggir betur stöðu kröfuhafa en ef niðurfellingin verður stjórnlaus - það er hún verði í formi gjaldþrotahrinu sem er fyrirsjáanleg ef niðurfærsluleiðin verður ekki farin.
Kostnaður við fjöldagjaldþrotin munu hins vegar falla á ríkið í meira mæli en niðurfærslan - og að líkindum enn meira á kröfuhafana - auk þess sem slík gjaldþrotahrina mun éta upp eignir þeirra landsmanna sem þó geta staðið undir lánunum sínum vegna hruns á fasteignaverði - fasteignir enn stærri hluta verður yfirveðsettur.
Til viðbótar þá mun kostnaður við að koma efnahagslífinu aftur af stað að líkindum verða miklu meiri ef niðurfærsluleiðin verður ekki farin - því hluti niðurfærsluleiðarinnar felst í að losa um fé til runnið geti til endurreisnar atvinnulífsins. En það vill Seðlabankinn greinilega ekki. Allavega tekur hann ekki æþann þáttinn inn í jöfnuna.
Hvernig væri að Seðlabankaliðið lyftu hausnum upp úr klofinu og horfi yfir sviðið í heild og þaðan til framtíðar?
... og svona að lokum. Ætli tímasetningin hjá Seðlabankanum - beint inn í landsfund Samfylkingar sé tilviljun?
Ónei.
Seðlabankinn er enn flokkspólitískari en hann var!
Nú er það bara norskur smákrati sem leiðir pólitíkina fyrir hönd Samfylkingarinnar og ríkisstjórnarinnar - í stað Davíðs Oddssonar áður.Niðurfelling skulda óhagkvæm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Stólarnir voru bara svo freistandi fyrir Samfylkingarfólk
27.3.2009 | 17:48
Það er einfalt af hverju Samfylkingin gerði ekki afdráttarlausar kröfur um breytingar á stjórnkerfinu. Samfylking vildi ekki breytingu á stjórnkerfinu í sjálfu sér heldur einungis að setja Samfylkingarfólk í þá stóla sem fyrir voru.
Núverandi forsætisráðherra gekk meira segja svo langt að hún braut lög þegar hún setti mann af til að koma Samfylkingarmanni í stólinn!
Ingibjörg Sólrún gekk líka dálítið langt í einkavinavæðingunni í utanríkisráðuneytinu.
Það er auðvelt að koma núna og segja - við hefðum átt - en það er bara of seint!
Átti að gera skýrari kröfur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20% leiðréttingarleið Framsóknar eina vitið
27.3.2009 | 10:10
20% leiðréttingarleið Framsóknarflokksins er eina vitið. Hún byggir á jafnræði, hún er mjög vel framkvæmanleg, hún er ekki dýr - þótt kratarnir haldi slíku fram algerlega órökstutt - og leiðin kemur atvinnulífinu aftur af stað.
Annars er það með ólíkindum að 20% leiðréttingarleið Framsóknar sé í Mogganum sífelld tengd Tryggva Þór Herbertssyni - en ekki Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Framsóknar sem setti hugmyndina fram með 17 öðrum skynsamlegum tillögum um aðgerðir í efnahagsmálum.
Þá er það einnig sérstakt að blaðamenn biðja kratana aldrei um rökstuðning þegar þeir staðhæfa að kostnaður við 20% leiðréttingarleið Framsóknar sé dýr fyrir ríkið. Það er hreinlega rangt hjá krötunum - enda hafa þeir aldrei þurft að færa rök fyrir upphrópunum.
Reyndar er athyglsivert hvað formaður Samfylkingarinnar teygir sig langt til að gagnrýna - án rökstuðnings - tillögur Sigmundar Davíðs og Framsóknarflokksins. Nú síðast í ræðu sinni á þingi ASÍ þar sem hún - ásamt Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ og stuðningsmanni Samfylkingarinnar - voru að pirrast út í Framsókn og Framsóknarfólk.
Er „Leiðrétting“ lausnin? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Óskrifuð regla Gylfa brot á vinnulöggjöfinni
27.3.2009 | 07:30
Gylfi Arnbjörnsson á að viðurkenna að hann hafi fundið upp nýja óskrifaða reglu hjá ASÍ: Framsóknarmenn í framboði skulu hætta hjá ASÍ.
Sú regla gengur reyndar gegn 4. gr. vinnulöggjafarinnar:
Atvinnurekendum, verkstjórum og öðrum trúnaðarmönnum atvinnurekenda er óheimilt að reyna að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir verkamanna sinna, afstöðu þeirra og afskipti af stéttar- eða stjórnmálafélögum eða vinnudeilum með:
a. uppsögn úr vinnu eða hótunum um slíka uppsögn,
b. fjárgreiðslum, loforðum um hagnað eða neitunum á réttmætum greiðslum.
Gylfi ætti því að hætta með þessa reglu.
Þá á Gylfi að sjá sóma sinn í að biðja Vigdísi Hauksdóttur opinberlega afsökunar á frumhlaupi sínu og og broti á vinnulöggjöfinni - vinnulöggjöf sem verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir með svita, blóði og tárum gegnum áratugina.
Óskrifuð regla ASÍ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gylfi segir ekki satt
26.3.2009 | 15:31
Gylfi segir ekki satt. Svo einfalt er málið. Ég bauð mig fram gegn Vigdís i fyrsta sætið. Vigdísi var mjög brugðið eftir símtalið við Gylfa þar sem hann gerði henni ljóst að hún yrði að velja milli þess að taka 1. sæti Framsóknarflokksins ef hún hlyti það - eða starfsins hjá ASÍ. Launalaust leyfi kæmi ekki til greina.
Vigdís valdi að taka sætið. Sótti því ekki um launalaust leyfi þar sem Gylfi hafði sett kostina afar skýrt upp við hana.
Væntanlega hafa Samfylkingarmennirnir á skrifstofu ASÍ ekki beðið um launalaust leyfi vegna kosningabaráttuna - væntanlega verða þeir bara á launum í kosningabaráttunni.
Það er ómaklegt hjá Gylfa að reyna að snúa sig út úr þessu máli með því að segja að:" ...enginn starfsmaður hafi óskað eftir launalausu leyfi vegna framboðs til Alþingis í vor."
Vigdísi var aldrei gefinn kostur á því.
Þá veit Gylfi jafn vel og ég að Vigdís hafði ekki frumkvæði að fréttaflutningi um starfslok hennar hjá ASÍ, eins og Gylfi gefur svo ósmekklega í skyn í yfirlýsingu sinni. Heimild fréttamanns var annars staðar frá - en ljóst að margir voru afar hneykslaðir á afstöðu og afarkostum Gylfa Arnbjörnssonar gagnvart framboði Vigdísar - og að líkindum sumir sem sitja nær Gylfa en Vigdís Hauksdóttir.
Vísar á bug ásökunum um pólitískar ofsóknir og nornaveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Það blasir við að núvarandi ríkisstjórn ætlar að byggja upp eigið fé ríkisbankanna með því að láta heimilin og atvinnufyrirtækin greiða að fullu verðtryggð lán sín til baka - þrátt fyrir að lánasöfnin hafi verið afskrifuð að stórum hluta við yfirfærsluna í nýju ríkisbankanna.
Það skýrir hatramma andstöðu og rakalausan málflutning ríkisstjórnar og forystu ASÍ gegn leiðréttingaráformum Framsóknarmanna sem vilja lækka lán fjölskyldna og atvinnufyrirtækjanna í landinu um 20%.
Það er hægt að að færa lánin niður um 20% - en þá getur ríkisstjónin ekki látið heimilin í landinu reisa við eigið fé ríkisbankanna af sama hraða og hana greinilega langar - og þá getur ríkisstjórnin heldur ekki handvalið hvaða Samfylkingarfyrirtæki eiga að lifa og hvaða fyrirtæki eiga að deyja.
Hvernig væri að blaðamenn spyrðu ráðherraliðið og forystu ASÍ um röksemdir - í stað órökstuddra upphrópana um að 20% leið Framsóknar kosti ríkið svo mikið.
Ég hef hvergi sé þá upphrópun rökstudda - enda er hún úr lausu lofti gripin!
Hagsmunasamtök heimilanna undirbúa málsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ákvörðunarfælni aðalsmerki Sjálfstæðisflokksins
26.3.2009 | 07:31
Ákvörðunarfælni heldur áfram að vera aðalsmerki Sjálfstæðisflokksins en eins og alþjóð veit þá átti ákvörðunarfælni Sjálfstæðisflokksins og leiðtoga hans stóran þátt í því efnahagshruni sem við upplifum núna.
Nú snýst ákvörðunarfælnin að Evrópusambandinu en Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki kjark til að taka ákvörðun um hvort kanna skuli kosti Íslendinga með aðildarviðræðum að Evrópusambandinu.
Framsóknarflokkurinn er því hinn raunverulegi leiðtogi aðildarviðræðna við Evrópusambandið með skýrri stefnu sinni þar sem mælt er með aðildarviðræðum með mjög skýrum skilyrðum.
Samfylkingin er ónothæf í að leiða aðildarviðræður þar sem þau annars ágætu stjórnmálasamtök vilja ganga í Evrópusambandið hvað sem það kostar og getur því ekki staðið í raunverulegum samningaviðræðum. Samfylking gæfi allt eftir til að komast inn.
VG er hins vegar á móti aðild að Evrópusambandinu en útilokar ekki aðildarviðræður.
Engin tillaga í ESB-skýrslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Forseti ASÍ mismunar fólki eftir flokksskírteinum
25.3.2009 | 13:08
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sagðist líta á það sem jafngildi uppsagnar hjá Vigdísi Hauksdóttur ef hún tæki 1. sæti á lista Framsóknarflokksins - en Vigdís leitaði eftir launalausu fríi fram yfir kosningar.
Gylfi er því að segja miðsstjórnarfulltrúum ASÍ ósatt þegar hann segir Vigdísi hafa óskað eftir því að hætta.
Það er greinilega gert upp á milli starfsmanna ASÍ eftir flokksskírteini.
Sjá nánar: Pólitískar hreinsanir hjá ASÍ
Gylfi reynir að afsaka sig með því að Vigdís sé í öruggu sæti og fari á þing. Það ætla ég svo sannarlega að vona - en minni á að Framsóknarflokkurinn hefur engan þingmann í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Einnig má minna á að Bryndís Hlöverðsdóttir var á fullum launum hjá ASÍ í kosningunum 1995 - og Magnús Norðdahl er nú á fullum launum í kosningabaráttu fyrir Samfylkinguna - þar sem hann tók þátt í prófkjöri.
Engin flokkspólitík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Pólitískar hreinsanir hjá ASÍ
25.3.2009 | 09:50
Forseti Alþýðusambands Ísland hefur nú hafið pólitískar hreinsanir innan ASÍ þar sem gert er gróflega upp á milli þeirra sem eru með flokksskírteini í Samfylkingunni og fólks í öðrum stjórnmálaflokkum. Forseti ASÍ ætti að biðjast afsökunar á þessari mismunun!
Lögfræðingur ASÍ - Vigdís Hauksdóttir - var rekin fyrir að fara í framboð fyrir Framsóknarflokksins á sama tíma og yfirmaður hennar - Magnús Norðdahl heldur starfi sínu þótt hann taki sæti á lista Samfylkingarinnar.
Vigdís óskaði eftir launalausu leyfi fram yfir kosningar - en svar ASÍ var að sambandið liti á það sem uppsögn ef hún tæki forystusæti hjá Framsóknarflokknum. Magnús situr hins vegar sem fastast væntanlega á launum í kosningabaráttunni.
Um þetta segir í frétt DV í dag:
Vigdís Hauksdóttir þurfti að hætta störfum sem lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands eftir að hún tók oddvitasæti hjá Framsóknarflokknum. Henni finnst skjóta skökku við að á sama tíma heldur Magnús Norðdahl áfram störfum hjá félaginu en hann skipar sjötta sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík.
Þetta kom mér mjög á óvart, segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík suður fyrir komandi kosningar. Vigdís starfaði sem lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands þar til henni var gert að hætta vegna framboðs hennar fyrir Framsóknaflokkinn. Þeir litu svo á að ef ég tæki þetta sæti jafngilti það uppsögn af minni hálfu. Ég sagði að það yrði þá svo, segir Vigdís.
Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, lítur svo á að með því að taka að sér að leiða framboðslista sé Vigdís að taka að sér nýtt starf. Það er ekki hægt að vera bæði þingmaður og starfsmaður Alþýðusambandsins, segir Gylfi og bendir á að hún sé nú nokkuð örugg með að komast á þing. Ég veit ekki til þess að það sé nokkuð vandamál á milli okkar Vigdísar, segir Gylfi.
Þessar pólitísku hreinsanir nýs forseta ASÍ koma ekki alfarið á óvart - því eftir að hann tók við hefur ASÍ virst starfa sem verkalýðsarmur Samfylkingarinnar en ekki fjöldahreyfing verkafólks úr öllum flokkum. Ekki þarf að rifja upp að forseti ASÍ er flokksbundinn Samfylkingarmaður sem hefur áður sóst eftir frama í þeim flokki.
Verða að biðjast afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)