Pólitískar hreinsanir hjá ASÍ

Forseti Alþýðusambands Ísland hefur nú hafið pólitískar hreinsanir innan ASÍ þar sem gert er gróflega upp á milli þeirra sem eru með flokksskírteini í Samfylkingunni og fólks í öðrum stjórnmálaflokkum. Forseti ASÍ ætti að biðjast afsökunar á þessari mismunun!

Lögfræðingur ASÍ - Vigdís Hauksdóttir - var rekin fyrir að fara í framboð fyrir Framsóknarflokksins á sama tíma og yfirmaður hennar - Magnús Norðdahl heldur starfi sínu þótt hann taki sæti á lista Samfylkingarinnar.

Vigdís óskaði eftir launalausu leyfi fram yfir kosningar - en svar ASÍ var að sambandið liti á það sem uppsögn ef hún tæki forystusæti hjá Framsóknarflokknum. Magnús situr hins vegar sem fastast væntanlega á launum í kosningabaráttunni.

Um þetta segir í frétt DV í dag:

Vigdís Hauksdóttir þurfti að hætta störfum sem lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands eftir að hún tók oddvitasæti hjá Framsóknarflokknum. Henni finnst skjóta skökku við að á sama tíma heldur Magnús Norðdahl áfram störfum hjá félaginu en hann skipar sjötta sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík.

„Þetta kom mér mjög á óvart,“ segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík suður fyrir komandi kosningar. Vigdís starfaði sem lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands þar til henni var gert að hætta vegna framboðs hennar fyrir Framsóknaflokkinn. „Þeir litu svo á að ef ég tæki þetta sæti jafngilti það uppsögn af minni hálfu. Ég sagði að það yrði þá svo,“ segir Vigdís.

Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, lítur svo á að með því að taka að sér að leiða framboðslista sé Vigdís að taka að sér nýtt starf. „Það er ekki hægt að vera bæði þingmaður og starfsmaður Alþýðusambandsins,“ segir Gylfi og bendir á að hún sé nú nokkuð örugg með að komast á þing. „Ég veit ekki til þess að það sé nokkuð vandamál á milli okkar Vigdísar,“ segir Gylfi.

Þessar pólitísku hreinsanir nýs forseta ASÍ koma ekki alfarið á óvart - því eftir að hann tók við hefur ASÍ virst starfa sem verkalýðsarmur Samfylkingarinnar en ekki fjöldahreyfing verkafólks úr öllum flokkum.  Ekki þarf að rifja upp að forseti ASÍ er flokksbundinn Samfylkingarmaður sem hefur áður sóst eftir frama í þeim flokki.


mbl.is Verða að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Árnason

Fór Bryndís Hlöðversdóttir í frí þegar hún fór í framboð fyrir Alþýðubandalagið (2. sæti) "og óháða" 1995? Hún var titluð lögfræðingur ASÍ sbr. vef Alþingis.

Sigurður Árnason, 25.3.2009 kl. 11:38

2 identicon

Hún var ráðinn af því að hún er í Framsókn og er frænka hans Guðna og vinkona Bjössa Snæ. Hún var nýútskryfuð og byrjaði fyrir nokkrum vikum en var bara lélegur starfskraftur, 50 ára og nýútskrifuð en gat lýtið í lögfræði. Þetta er lýgi í DV og Framsókn. Hún var ráðinn fyrir Framsókn en rekinn af því að hún var léleg.

Róbert (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband