Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Djarft skref í friðarátt hjá Framsóknarmanninum

Barack Obama forseti Bandaríkjanna hefur tekið djarft skref í friðarátt með því að bjóða leiðtogum Ísraela, Eygypta og heimastjórnar Palestínumanna í Hvíta húsið í sumar. Obama gefur þannig skýr skilaboð um að hann sé reiðubúinn til að leggja mikið á sig til að ná fram friði í Miðausturlöndum. 

Hvort það tekst er aftur á móti annað mál. En það geristi ekkert ef menn reynda ekki! 


mbl.is Leiðtogum Miðausturlanda boðið í Hvíta húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgvin styrkir stöðu Steingríms J. sem forsætisráðherraefnis!

Björgvin Guðmundsson styrkti verulega stöðu Steingríms J. sem forsætisráðherraefnis í mögulegri vinstri stjórn með því að setja aðildarviðræður að Evrópusambandinu sem ófrávíkjanlegt skilyrði Samfylkingar fyrir stjórnarsamstarfi við VG.

VG þarf því ekki að verða stærri en Samfylking - sem vel gæti orðið - til þess að fá forsætisráðherraembættið fyrir Steingrím J. VG getur sett það sem skilyrði ef flokkurinn samþykkir að fara í aðildarviðræður.


mbl.is O-listi fengi fjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J og VG vinna gegn garðyrkjubændum

VG og Steingrímur J segja eitt en gera annað. Í síðustu viku hafnaði Steingrímur að framlengja samkomulag sem Framsóknarráðherran Valgerður Sverrisdóttir beitti sér fyrir og fól í sér niðurgreiðslu raforku til garðyrkjubænda.

VG og Steingrímur eru því væntanlega að sjá til þess að garðykrjubændur slökkvi á lýsingu sinni í íslenskum gróðurhúsum með ófyrirsjánlegum afleiðingum fyrir íslenska neytendur - og efnahagslífið - því slíkt eykur á þörf fyrir innflutning grænmetis.

Var ekki nóg að vinna gegn atvinnuuppbyggingu með því að berjast gegn álveri á Bakka -  nú er einnig ráðist að íslenskum garðyrkjubændum!


mbl.is „Þetta var fínn fundur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn flýr Jóhanna Sigurðardóttir umræðu við pólitíska andstæðinga

Enn flýr Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar umræðu við pólitíska andstæðinga sína. Sendi nú Árna Pál fyrir sig í umræðu leiðtoga stjórnarflokkanna á RÚV í morgun.

Þetta er reyndar skynsamleg stefna hjá Samfylkingunni - enda ljóst að Jóhanna myndi eiga verulega undir högg að sækja í slíkri umræðu. ´

Betra að hafa hana þar sem hún talar ein og sér og er ekki gagnrýnd - eins og á aðalfundi Seðlabankans - í stað þess að þjóðin átti sig á því að myndin af Jóhönnu er glansmynd sem fölnar örugglega í umræðu Jóhönnu við pólitíska andstæðinga hennar.


Það grænkar hratt í Reykjavík

Það grænkar hratt í Reykjavík þessa dagana. Bæði í náttúrunni og í stjórnmálunum. Framsókn á uppleið og runnarnir laufgast. Svona á vorið að vera!
mbl.is Frekar hlýtt í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt klúður Jóhönnu og ríkisstjórnar

Við erum að horfa upp á enn eitt klúður Jóhönnu og ríkisstjórnarinnar. Þýðir ekkert fyrir þau að fela sig á bak við bankaráðin,

Annars er það með ólíkindum hversu fælin Jóhanna er á að ræða við andstæðinga sína um pólitík! 

Jóhanna hefur vit á að boða forföll þegar hún er ekki ein með sviðið - og slær síðan um sig á fundum þar sem hún þarf ekki að svara fyrir ekki aðgerðir sínar. Gott dæmi er aðalfundur Seðlabankans þar sem Jóhanna getur slegið fram hverju sem er - án þess að þurfa að svara fyrir það. Eða ASÍ fundurinn þar sem hún ræðst að pólitískum andstæðingum sínum - með órökstuddum dylgjum - í trausti þess að þurfa ekki að svara fyrir sig.

Skynsamleg kosningabarátta hjá Samfylkingu - fela Össur algerlega - forða Jóhönnu frá pólitískri umræðu við aðra - en hampa henni þar sem hún hefur ein sviðið og þarf ekki að svara gagnrýnum spurningum - enda pólitík Jóhönnu á þunnum ís...

Minnir svolítið á forseta Venesúela ...

.. en verst af öllu er að Jóhanna hefur ekki áhuga á atvinnulífinu - sjá hér


mbl.is Ítrekar að kaupum sé aflýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr leiðtogi Norðausturkjördæmis stígur fram með stæl!

Þótt Steingrímur hafi rétt fyrir sér þegar hann ræðir skemmdarverk og ofbeldi Sjálfstæðisflokksins þá kom það berlega í ljós í kosningaþætti RÚV í Norðausturkjördæmi - að pólitísk sól Steingríms J. sem oft hefur skinið skært - er að hníga til viðar.  Aftur á móti var það staðfest að nýr leiðtogi Norðausturkjördæmis er kominn á sviðið - Birkir Jón Jónsson varaformaður Framsóknarflokksins. 

Birkir Jón bar af í þættinum og er nú fullur sjálfstrausts sem leiðtogi en hann fyrir Framsóknarflokknum þar í fyrsta skipti.

Steingrímur var einnig fínn - en áberandi að hann er á síðustu metrunum.

Með fullri virðingu fyrir hini ágæta fólki sem var með þeim í þættinum - þá var það langt að baki - ljóst að þar er enginn alvöru forystumaður fyrir kjördæmið á ferð!


mbl.is Ofbeldi og skemmdarverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskar Bergsson og Ólafur F. Magnússon sammála um opnun bókhalds borgarfulltrúa!

Borgarfulltrúarnir Óskar Bergsson og Ólafur Friðrik Magnússon eru sammála um að allir borgarfulltrúar upplýsi um öll fjárframlög sem þeir hefðu þegið frá fyrirtækjum og hagsmunatengdum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.

Þetta kom fram á fundi borgarráðs í dag þar sem Óskar Bergsson lýsti sig sammála tillögu Ólafs Friðriks sem lögð var fyrir borgarráð og hljóðar svo:

"Borgarráð telur brýna nauðsyn bera til þess að upplýst verði um öll fjárframlög til félaga og einstaklinga innan þeirra framboða sem fengu háa fjárstyrki frá fyrirtækjum og hagsmunatengdum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Borgarráð samþykkir því að beina þeim eindregnu tilmælum til frambjóðenda í prófkjörum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar að þeir opni bókhald sitt þegar í stað."

Tillögunni var vísað til forsætisnefndar.

Það verður athyglisvert að sjá hvort Óskar og Ólafur Friðrik séu einu borgarfulltrúarnir sem telja að allir borgarfulltrúar skuli upplýsa um stuðning sem þeir fengu vegna framboða sinna - eða hvort aðrir borgarfulltrúar séu þeim sammála.

Eðlilega blaðamennska væri að spyrja oddvita allra flokkanna í borgarstjórn um afstöðu þeirra til þessarar tillögu.

Vonandi munu þeir félagarnir ná fram þessari tillögu þannig við fáum upp á borðið þessar upplýsingar frá ÖLLUM borgarfulltrúum.


Sjálfstæðisflokkurinn óttast fólkið í landinu

Ótti Sjálfstæðismanna við vilja fólksins í landinu er brjóstumkennanlegur. Að venju stendur flokkurinn í vegi fyrir því að gerðar verði breytingar á stjórnarskrá sem miða að auknu vægi almennings. Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja að flokkurinn geti tryggt hagsmuni sína - haft vit fyrir þjóðinni.

Það sama má reyndar segja um stóran hluta Samfylkingar og embættismannakerfið.  Á þeim bæjum falla nú krókódílatár yfir því að ákvæði um að þjóðin setji sér stjórnskipan framtíðarinnar sjálf - án atbeina stjórnmálamanna og embættismannakerfisins - sé úr sögunni.

Þarna nær Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og embættismannakerfið saman um að treysta fólkinu ekki fyrir að velja sjálft framtíð sína á lýðræðislegan hátt - nei embættismannakerfið, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn vilja geta "lagað" það sem fólkinu í landinu leggur til að verði framtíðarstjórnskipan gegnum vinnu stjórnlagaþings fólkins.´

Það verður spennandi að sjá hvort Sjálfstæðisflokkurinn mun einnig koma í veg fyrir ákvæði um að í stjórnarskrá verði tryggt að auðlindir Íslands verði í eigu og á forræði þjóðarinna - á sama hátt og Samfylkingin kom í veg fyrir þá tillögur Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar!


mbl.is Stjórnarskráin áfram á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brauðmolum kastað til lýðsins!

Umfjöllun um fjármál stjórnmálaflokkanna og greining á því hverjir styrktu þá á árinu 2006 var tímabær og gott að stjórmálaflokkarnir upplýstu hverjir hafa styrkt þá. Óhóflegir styrkir til Sjálfstæðisflokks vekja vissulega athygli þótt þær upplýsingar ættu ekki að koma neinum á óvart. Það kom mér hins vegar á óvart hvað fáir og tiltölulega lágir styrkir voru til Samfylkingar, Framsóknar og VG á árinu 2006.

Þetta er komið upp á borðið og tími kominn til að taka stöðuna í dag og horfa til framtíðar.

Það er gott að byrja leiðangur til framtíðar með því að lesa páskadagsyfirlýsingu Hagsmunasamtaka Heimilanna:

Brauðmolum kastað til lýðsins

  • Samkomulagi án aðkomu lántakenda er stríðsyfirlýsing
  • Krafa um sanngjarna skiptingu byrða
  • Vörn fyrir öll sparnaðarform, ekki bara sum
  • Mesta eignaupptaka sögunnar í sjónmáli
  • Lýst eftir betri lánakjörum ekki lengingu á því sama
  • Bankakerfið fellur, ef gjaldþrotaleiðin verður farin

Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla harðlega þeirri ákvörðun stjórnvalda og fjármálafyrirtækja að sniðganga með öllu sanngjarnar og hóflegar tillögur samtakanna um leiðréttingu gengis- og verðtryggðra fasteignalána.  Að sama skapi mótmæla samtökin þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem liggja til grundvallar samkomulagi stjórnvalda og fjármálafyrirtækja. 

Sjá nánar: „Það glittir bara í löngutöng“

 


mbl.is Fengu meiri styrki árið 2006
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband