Óskar Bergsson og Ólafur F. Magnússon sammála um opnun bókhalds borgarfulltrúa!

Borgarfulltrúarnir Óskar Bergsson og Ólafur Friðrik Magnússon eru sammála um að allir borgarfulltrúar upplýsi um öll fjárframlög sem þeir hefðu þegið frá fyrirtækjum og hagsmunatengdum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.

Þetta kom fram á fundi borgarráðs í dag þar sem Óskar Bergsson lýsti sig sammála tillögu Ólafs Friðriks sem lögð var fyrir borgarráð og hljóðar svo:

"Borgarráð telur brýna nauðsyn bera til þess að upplýst verði um öll fjárframlög til félaga og einstaklinga innan þeirra framboða sem fengu háa fjárstyrki frá fyrirtækjum og hagsmunatengdum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Borgarráð samþykkir því að beina þeim eindregnu tilmælum til frambjóðenda í prófkjörum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar að þeir opni bókhald sitt þegar í stað."

Tillögunni var vísað til forsætisnefndar.

Það verður athyglisvert að sjá hvort Óskar og Ólafur Friðrik séu einu borgarfulltrúarnir sem telja að allir borgarfulltrúar skuli upplýsa um stuðning sem þeir fengu vegna framboða sinna - eða hvort aðrir borgarfulltrúar séu þeim sammála.

Eðlilega blaðamennska væri að spyrja oddvita allra flokkanna í borgarstjórn um afstöðu þeirra til þessarar tillögu.

Vonandi munu þeir félagarnir ná fram þessari tillögu þannig við fáum upp á borðið þessar upplýsingar frá ÖLLUM borgarfulltrúum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan dag Hallur.Það er bráð nauðsynlegt að þingmenn og konur sem og borgarfulltrúar hafi opið bókhald hvað varðar styrki og gjafir sem þeir/þær fá í kosningabaráttu sinni.

En að öðru, enn er spurt um strætómiða og eru þeir bráðnauðsynlegir þar sem ekkí verður akstur frá 10 mai og þá eru það einhverjir sem komast ekki vegna þess að engin ferð er.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 09:27

2 Smámynd: Hallur Magnússon

geng í málið aftur

þetta var eitthvað kerfislega flókið - en við hljótum að finna lausn á því!

Hallur Magnússon, 17.4.2009 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband