Lýgur Jóhanna ítrekað að þjóðinni?

Ætli fullyrðing Jónasar Kristjánssonar „Jóhanna Sigurðardóttir lýgur ítrekað að okkur“ sé rétt?

Eftirfarandi bloggfærsla Jónasar um þetta er að finna á www.jonas.is:

„Jóhanna Sigurðardóttir lýgur ítrekað að okkur, að 75%-95% fáist upp í skuld þjóðarinnar vegna IceSave. Hefur ekkert fyrir sér í því. Alls ekkert. Það er bara ein af venjulegum fullyrðingum hennar út í loftið. Eins og fullyrðingin um, að hin og þessi mál „verði skoðuð“.

Ekkert hefur verið reynt að skýra, hvernig meintar eignir IceSave skiptist. Ekki orð um endurheimtulíkurnar í hverjum útlánaflokki. Og ekki orð um, á hvaða rökum þær séu reistar. Jóhanna vill bara, að fullyrðingum sínum sé trúað. Eftir það sem áður var heyrt í innantómum fullyrðingum hennar, er ótrúlegt, að fólk vilji trúa henni núna.“

Slæmt ef rétt er.

Vonandi er þetta þó misskilningur hjá Jónasi - en innantóm vilyrði Jóhönnu um "opna umræða" og "allt upp á borðinu" eru ekki traustvekjandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ætli Jóhanna hafi fengið að skoða eignasafn Landsbankans/Icesave? Og fekk hún um leið námskeið í því, hvernig meta eigi sölugildi þess miðað við ástand skuldara Landsbankans og horfurnar á skuldabréfamörkuðum? Hræddur er ég um, að Jónas hafi rett fyrir sér.

Jón Valur Jensson, 7.6.2009 kl. 12:18

2 Smámynd: corvus corax

Jónas hefur rétt fyrir sér, Jóhanna er ekkert nema lygar, svik, fals og laumupokahátturinn! Og Steingrímur hefur gjörsamlega brugðist kjósendum sínum en það er allt í lagi, nýliðnar kosningar voru síðustu kosningarnar sem koma honum inn á þing og í ríkisstjórn, svo herfilega hefur hann svikið mig og þig!

corvus corax, 7.6.2009 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband