Álfheiður á móti atvinnutækifærum?

Álfheiður Ingadóttir þingmaður VG virðist vera á móti atvinnutækifærum einmitt nú þegar þeirra er svo sárlega þörf. Sérkennilegt.


mbl.is Alfarið á móti álverssamningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Hallur,

Þetta er þreyttur frasi hjá ykkur Framsóknarmönnum. Heldurðu virkilega að fólk sé á móti atvinnutækifærum? Eruð þið Framsóknarmenn á móti gáfulegum fjárfestingum hljóta menn að spyrja á móti?

Hvað segirðu annars um viðtalið við Perkins í Silfrinu í gær?

Þórdís (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 12:18

2 Smámynd: Hilmar Dúi Björgvinsson

Hvað er svona sérkennilegt við þetta...kynntu þér málin aðeins betur...er þetta gáfulegt eins og stðan er í dag?

Hilmar Dúi Björgvinsson, 6.4.2009 kl. 12:20

3 identicon

þú ert svo snjall Hallur

það er spurning hvort við ættum ekki að fara út í ópíumræktun, svona fyrst Afghanistan er meira að segja búið að uppgötva að meira fæst fyrir hveiti en ópíum/heróín til framleiðslu

en nei, virkjum bara allt helvítis landið til að búa til 400-500 störf

ekki þykir mér það merkileg ráðgjöf fyrir landið

Hörður Ágústsson (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 12:25

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Er einhver að fara að "virkja allt helvítis landið" fyrir 400-500 störf? Er þetta innlegg skoðanabræðra Álfheiðar?

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.4.2009 kl. 12:40

5 Smámynd: Sævar Helgason

Kostar ekki um 350 milljónir að búa til eitt starf í áliðnaði ?  Nú er álverð verulega undir arðsemismörkum íslenskra virkjana og allar líkur á að svo verði næstu 8-12 árin.  Landsvirkjun stendur illa - á aðeins rekstrarfé til um 20 mánaða. Lánstraust íslendinga er ekkert erlendis og með öllu óvíst hvenær það lagast.  Nú er gott lag til að stórefla framleiðslu innanlands- t.d matvælaframleiðslu í rafdrifnum gróðurhúsum í miklum mæli. það kostar lítið í grunninn /starf.  Gagnaver og kílisflöguiðnaður er af sama grunni. Álver er það versta sem við getum farið út í núna...  auk lágs raforkuverðs heimta þau miklar skattaívilnanir og fleiri ívilnanir...

Sævar Helgason, 6.4.2009 kl. 12:42

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Eigið fé Landsvirkjunar var um mitt síðasta ár 1.7 milljarðar Bandaríkjadala, eins og fram kemur í 6 mánaða uppgjöri fyrirtækisins sem birt er á heimasíðu þess.  Miðað við gengið nú eru þetta um 195 milljarðar króna.  Um 70% tekna af raforkusölunni koma frá stóriðju, þannig að lauslega áætlað  má rekja allt að  70%  eiginfjár Landsvirkjunar  til hennar.  Það þýðir að sala raforku til stóriðju hefur fært eiganda Landsvirkjunar, íslenska ríkinu, eign sem nemur  rúmlega 130 milljörðum króna.  Þessar tölur kunna að vera breytilegar eftir árferði og gengi dollarans, en breytir ekki hinu að um gríðarlegar fjárhæðir er að ræða.

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.4.2009 kl. 14:00

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Framkvæmdir eru þegar í gangi í Helguvík eins og myndin sem tekin var í mars sýnir. Það hefur þó verið hægt á framkvæmdum.

Álverð hefur hugsanlega náð botninum og virðist jafnvel vera farið að hækka aðeins.

 

Ágúst H Bjarnason, 6.4.2009 kl. 15:37

8 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Ég sé að einn er að tala um kostnað á starf hafa ber í huga að hér er ekki  um íslenska framkvæmd að ræða það eru erlendir aðiljar sem koma hér að sem sagt gjaldeyris skapandi framkvæmd um 400 miljarðar koma inn í þjóðarbúið hvert starf skilar hjá álverum um 70 milljónum í gjaldeyrir ekkert annað starf skilar jafn miklu, eins og að ofan greini koma inn í þjóðarbúið um 350 milljónir í gjaldeyrir á hvert starf við framkvæmdir eins og Sævar greinir.

Svo eru þessir  LME Rússarnir skoða hve stórir þeir eru, ágæt síða, Riotinto á Times og önnur álfyrirtæki, Alminum , sprotafyrirtæki Íslensk .

 Áliðnaður á Íslandi veltir um 180 miljörðum á ári 42 til 44.5% verða eftir í gjaldeyrir í þá launum, verktökum birgjum, orku og sköttum eða um 78 til 80 milljarðar árleg.

Rauða Ljónið, 6.4.2009 kl. 16:18

9 Smámynd: Hallur Magnússon

Jæja!

:)

Hallur Magnússon, 6.4.2009 kl. 16:46

10 identicon

Hvernig ætti LV að fjármagna frekari virkjanagerð?

Fjármögnunarmöguleikar Landsvirkjunar litlir sem engir að mati fjárfesta.

http://eyjan.is/blog/2009/04/02/fjarmognunarmoguleikar-landsvirkjunar-litlir-sem-engir-ad-mati-fjarfesta/

Þórdís (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband