Láta vinstri flokkarnir bindindismennina borga brúsann?

Alþjóð er að gera sér grein fyrir að leið Framsóknarflokksins um 20% leiðréttingu er líklega langbesta leiðin til þess að verja heimili og fyrirtæki og koma efnahagslífinu af stað aftur.

Þær slitróttu hugmyndir Samfylkingar og VG virðast sambærilega og sú leið að láta bindindismennina borga brúsa ofdrykkjumannanna, eins og eftirfarandi dæmisaga lýsir svo ljómandi vel:

Hilda er bareigandi í Berlín. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít.

Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega  fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn.

Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Hildu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni.

Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Hildu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta  vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.

Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum  viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og  Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn  þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um  allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða  hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau  eru metsöluvara.

Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá  ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að   drykkjuhrútarnir á bar Hildu borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir  geta það hins vegar ekki. Hilda getur því ekki staðið í skilum við  sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla  um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugkeika eftir 80% fall.

Nýr  veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og  hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi  Hildu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið  af keppinauti.

Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í  marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum.

Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann.


mbl.is Verðtryggingin burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sagan er góð.

Hún lýsir náttúrulega aðdragandanum vel. Hvernig sérvaldir flokksgæðingar, eins og Finnur Ingólfs og Ólafur Ólafs, gátu farið á stjórnlaust eyðslufyllirí á kostnað þjóðarinnar.

Nú á þjóðin að borga, því samkvæmt tillögum Framsóknarflokksins eiga Finnur og Ólafur að fá mest, en reikningurinn fyrir kosningavíxli Framsóknarflokksins, ca. 300 milljarðar, verður sendur skattgreiðendum.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 08:18

2 identicon

Menn átta sig kannski ekki alveg á því hvernig samlíking alkóhólisma og bankahruns birtist sem hyldjúpir fordómar gagnvart þessum sjúkdómi. Og það verður að segjast eins og er að opinberar fígúrur þurfa þá helst að reiða sig á heimsku sína ef þeim dettur ekkert annað í hug að segja. Alkóhólismi er fátæktarsjúkdómur fyrir langflesta og þess vegna samlíkingin enn ömurlegri. Gagnvart fólki í landinu þ.e. kjósendum, er bankahrunið á ábyrgð stjórnmálamanna eins og þín Hallur. Það er mergur málsins.

Arnþór (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 08:40

3 identicon

Það er soldið gaman að sjá Framsóknarmann lýsa því hvernig hans menn tóku bankakerfið á íslandi og sneru því á hvolf.

hefur sennilega ekki hugsað það þannig enda er það frægt að framsóknarmenn kunna ekki að skammast sín.

Ruglið og bullið í kringum þennan flokk ætlar engan enda að taka sem sést best á því hverskonar spillingagosa þeir hafa valið sér sem formann. Sá sami er svo aftur vel þjálfaður af öðrum frægum framsóknar spillingarmanni þ.e.a.s föður sínum.

Afhverju gerir Sigmundur ekki grein fyrir fjármálum sínum? 

er það útaf því að hann efnaðist á fyrirtæki sem pabbi hans fékk gefins frá ríkinu með smá sjónarspili.?

eða getur það verið útaf því að hann var í einhverjum svipuðum leik og þú lístir hér áðan? 

Ólafur (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband