Félagi Össur guðfaðir Sjálfstæðisflokksins á Akranesi?

Er félagi Össur Skarphéðinsson orðinn guðfaðir Sjálfstæðisflokksins á Akranesi?

Er hann kannske að undirbúa inngöngu Samfylkingarinnar í Sjálfstæðisflokkinn?

Er félagi Össur svo Geirnegldur í aðgerðarleysi íhaldsskruggunnar sem hann prísar svo reglulega upp á síðkastið að hann afsali sér sjálfsákvörðunarrétti Krata og gamalla Allaballa í Samfylkingunni?

Þetta eru spurningar sem skjóta upp í kollinum þegar ég les aftur pistil Össurar, Frjálslyndir kolfalla á prófinu , frá því í gær!

Var það Össur sem fékk hinn gamla góða eðalkrata Gísla S. Einarsson til að ganga í lið með hinni frjálslyndu Kareni Jónsdóttur sem sinnti kalli Össurar, sleit samstarfi við Frjálslyndaflokkinn - og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn!

Ja hérna Össur, minn gamli vin!

Ég held samt ekki Cool


mbl.is Lýsa yfir stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hver veit nema að Össur okkar gamli góði umhverfisráðherrann sá eini sem hefur haft einhverja vigt, fari í endurvinnsluna hjá Sjálfstæðisflokknum, rétt eins og Gísli Einars, Oktavía og Sigbjörn á Akureyri. 

Sigurjón Þórðarson, 14.5.2008 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband