Hámarkshraðann í 100 jafnvel 110 á Reykjanesbrautinni!
7.8.2009 | 09:46
Ekki ætla ég að mæla ofsaakstri bót. Hitt er að hámarkshraði á tvöfaldri Reykjanesbrautinn er allt of lágur. Reykjanesbrautin er byggð sem hraðbraut. Að sjálfsögðu á að hækka hámarkashraðann á tvöfaldri Reykjanesbrautinn í að minnsta kosti 100 - jafnvel í 110!
Ekki gleyma ákvæðum umferðalaga um að haga skuli akstri eftir aðstæðum. Það þýðir að við erfið umferðaskilyrði þá eiga bílstjórar ekki að aka á hámarskhraða.
Meira að segja í Noregi væru búið að hækka hámarkshraða á tvöfaldri Reykjanesbraut í 110.
Á móti mætti sumstaðar lækka hámarkshraða - eins og til dæmis á Réttarholtsveginun í Reykjavík þar sem hámarkshraði ætti að vera 30 - enda gatan í miðri íbúðabyggð og skilur að skólahverfi. Þar bruna fullhlaðnir flutningabílar oft á tíðum á hraða sem er langt yfir 50 km hámarkshraðanum þar.
Sé aldrei löggu að mæla á Réttarholtsvegi - en sé þær mjög gjarnan á götum sem þola vel góðan aksturshraða. Eins og td. Reykjanesbraut.
Hraðakstur á Reykjanesbrautinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:49 | Facebook
Athugasemdir
ég er sammála þér í þessu Hallur, en hámarkshraði í noregi er 100 kmh og bara á einum stað að ég held.. milli oslo og Gardermoen. Annarstaðar gildir 90, 80 og 70
annars er hér blogg um svipaðan hlut í noregi sem birt var í dag.
http://sveinbakke.vgb.no/2009/08/05/sette-ned-fartsgrense-hvorfor-misvisende-statistikk-kanskje/
Óskar Þorkelsson, 7.8.2009 kl. 10:25
Nei Óskar.
Hámarkshraðinn er 110 í Noregi á hraðbrautinni frá Drammen og suður - þe. þann hluta sem er hraðbraut.
Algengur hámarkshraði er hins vegar víðast 90 - utan þéttbýlis - og á nokkrum stöðum 100.
Hallur Magnússon, 7.8.2009 kl. 10:48
já ok það er nýtt fyrir mér, sá vegakafli var bara tvíbreiður síðast þegar ég ók hann fyrir um 8 árum síðan. Nema þú sért að meina á milli Drammen og Oslo
Óskar Þorkelsson, 7.8.2009 kl. 11:07
Vegalengd er 48 km.
Tími miðað við 90 km/klst. = 32 min
Tími miðað við 100 km/klst = 29 mín
3 mín sparnaður á 100 km/klst heldur en 90 km/klst.
Hvet fólk til að aka á löglegum hraða !
Allar skýrslur sýna að með auknum hraða aukast slysin.
Ökum varlega !
HR, 8.8.2009 kl. 09:38
Allar skýrslur sýna að með auknum hraða aukast slysin.
Þetta er ekki rétt hjá þér.. aukin hraði á veg sem er ekki ætlaður fyrir meira en 70-90 kmh eykur slysahættu td ef ekið er á 100-110 kmh.. vegur sem er gerður sem hraðbraut (110 +) eykur ekki slysahættu fyrr en fólk er farið á keyra mun hraðar en vegurinn er gerður fyrir, 130 +..
En ég er sammál því að hraðinn drepur ;)
Óskar Þorkelsson, 8.8.2009 kl. 10:23
Sæll Hallur
Svarar þú þessu ekki sjálfur með því að vitna í flutningabíla á Réttarholtsveginum.
Í dag er hámarkshraði á Reykjanesbraut 90 km/klst en þar bruna allar tegundir af bílum á 100-110 km hraða á klst. Enda gera menn ráð fyrir ákveðnum vikmörkum í hraðamælingum lögreglunnar. Þannig að ef hámarkshraði yrði aukinn í 100 km/klst eða 110 km/klst myndi raunverulegur hraði bíla verða 120-130 km/klst. Undanskil þar flutningabíla og hópferðabíla sem flestir eru með útslátt við 90 eða 100 km/klst.
Og já, því meiri sem hraðinn er þeim mun meiri hætta er á alvarlegum meiðslum verði slys.
Bestu kveðjur, Gissur
Gissur Jónsson, 8.8.2009 kl. 19:50
Gissur ég vitna í norska bloggið hér að ofan.... þar er einmitt farið í þetta sem þú segir.
Óskar Þorkelsson, 8.8.2009 kl. 19:55
Ef það væri hraðinn sem drepur þá ætti Autpbahn í þýskalandi að vera hættulegasti vegur í heimi en það er hann ekki heldur einn af þeim öruggustu af því að hann er gerður fyrir hraðann sem er á honum.
Hannes, 8.8.2009 kl. 20:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.