Áfengissmygl til útlanda?

Ég hef heyrt að nú sé stundað áfengissmygl til útlanda. Ekki að undra þegar bjórinn kostar 1250,- á Strikinu - og þá væntanlega marga þúsundkalla í miðborg Parísar!  Bjórinn kostar hins vegar ennþá 600 -700 kall á Íslandi á veitingastað skilst mér.

Hitti rússneskan barþjón í ræktinni í gær. Hann er á leið heim. Hafði vit á því að skipta hýrunni sinni jafnóðum í Evrur þessi ár sem hann hefur búið á Íslandi.

Hann sagði mér að áður fyrr hefðu norskir ferðamenn verið þeir einu sem höfðu efni á því að kaupa sér bjór á Íslandi. Undanfarna daga hafi þetta hins vegar breyst! Nú séu allir útlendingar svo glaðir og ánægðir yfir því hvað bjórinn sé ódýr á Íslandi að þeir eigi það til að panta sér staup af köldu, íslensku brennivíni með bjórnum - og það með bros á vör!

Öðru vísi mér áður brá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég keypti bjór á Íslandi í gær og drakk hann ekki. Er hann þá ekki hugsanlega góð fjárfesting? En í alvöru talað: Hvað gerist þegar við verðum færðir hreppaflutningum frá ..... til Íbúðalánasjóðs?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 9.10.2008 kl. 09:17

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Það fer eftir því hvernig það er gert. Mín tillaga er að ÍLS stofnu dótturfélag í hlutafélagsformi um lánin - og enduskipuleggi lánasafnið þar.

Hallur Magnússon, 9.10.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband