Jákvætt skref hjá Ingibjörgu Sólrúnu!
22.4.2008 | 16:49
Ingibjörg Sólrún stígur jákvætt skref með því að skipa sérstakan sendifulltrúa í málefnum Palestínumanna og gefa þannig kost á því að Íslendingar geti tekið þátt í friðarferli milli Palestínumanna og Ísraela. Við getum leikið hlutverk í slíku friðarferli - ekki hvað síst ef við náum sæti í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.
Þórður Ægir Óskarsson sendiherra er rétti maðurinn í starfið. Hann starfaði lengi fyrir hönd Íslands að RÖSE - Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu- sem endaði með stofnun ÖSE - Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Sú reynsla ætti að nýtast honum sem sendifulltrúi í málefnum Palestínu.
Það kann að vekja athygli einhverra að ekki er um sendiherrastöðu að ræða - en þar sem Palestína er ekki fullgilt ríki þá er slíkt ekki unnt.
Við Íslendingar hljótum hins vegar að líta á stöðuna sem sendiherrastöðu - á sama hátt of við lítum á sama hátt og við lítum á aðalræðismannsstöðu Íslendinga í Færeyjum sem sendiherrastöðu!
Friðarfundur á Íslandi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
En annars spyr ég, hvar er Þórður Ægir Óskarsson sendiherra ?
Er hann ennþá í Tókýo, Kanada, eða einn af fjölmörgum sendiherrum sem staðsettir eru á Klakanum og vantar hugsanlega eitthvað að gera ?
Spyr sá sem ekki veit...
Ingólfur Þór Guðmundsson, 22.4.2008 kl. 18:09
Hann er sendiherra í Japan, en er kallaður heim til að taka við þessu verkefni. Verður staðsettur í Reykjavík.
Hallur Magnússon, 22.4.2008 kl. 19:28
... held ég!
En Þórður Ægir er toppmaður og hefur staðið sig afar vel í utanríkisþjónustunni þar sem hann hefur unnið sig upp frá grunni.
Hallur Magnússon, 22.4.2008 kl. 19:29
Gott framtak hjá utanríkisráðhr.Gæti skapað okkur aðstæður til að verða virkir þátttakendur í þessum t.d.að hér yrðu haldnir fundir deiluaðila.
Kristján Pétursson, 22.4.2008 kl. 19:59
Þú kemur bara með hverja snilldarfærsluna á fætur annarri Hallur og alltaf er ég sammála. Ekki síður ætla ég að hrósa Dodda Óskars (Þórði Ægi). Hann er náttúrlega toppmaður eins og aðrir Skagamenn. - Hvað gerðurðu annars við færsluna um Seðlabankann í þátíð? - Ég var búinn að sjá fyrisögnina en átti eftir að lesa pistilinn.
Haraldur Bjarnason, 22.4.2008 kl. 20:41
Haraldur!
Ég hélt að færslan væri inni - en hún er algerlega horfin! var reyndar að krukka í hana - bæta við einni setningu - og tók fræslunar úr á meðan. Ég hef greinilega eytt henni fyrir slysni!
Hún var svo sem ekki merkileg - kóperaði bara frétt af visir.is þar sem seðlabanakastjóri sagðist hafa rætt við blaðamann Börsens í viðtengingarhætti! Fannst það fyndið - því Seðlabankinn er svo oft að tala í viðtengingarhætti - en hugsar oftar í þátíð en nútíð - meira að segja um um framtíðina!
Hallur Magnússon, 22.4.2008 kl. 22:11
Reyndar var greinin af www.vb.is.
Það er töluverð umfjöllun um þetta reyndar í Viðskiptablaðinu á morgun - sýndist mér á pdf útgáfunni á vefnum í kvöld! Ansans - þess heldur hefðu færslan verið fín!
Hallur Magnússon, 22.4.2008 kl. 22:13
... já Doddi er toppmaður!
Við unnum saman í blaðamennsku fyrir 20 árum síðan!
Hallur Magnússon, 22.4.2008 kl. 22:14
Alveg ágætt, ég er samt hræddur um að þetta "hlutverk" okkar verði það sem kallast "fótatak í fjarska" en hver veit, kannski verða haldnir hér friðarfundir um allar sveitir og að Ísland verði á endanum tákn um langþráðan frið. Ég vona það a.m.k.
Gunnar Jóhannsson, 22.4.2008 kl. 23:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.