Neðanjarðarumferð í Reykjavík!
28.1.2008 | 08:33
Ég sé að hugmyndir um neðanjarðarumferð í Reykjavík eru að verða sífellt vinsælari. Það sjá flestir sem það vilja sjá að Sundabraut í göng er eina vitið. Þá blasir það við öllum sem ganga á Öskjuhlíðina að það var nánast galið að hafa ekki lagt Hringbrautina í stokk þegar hún var lögð um Vatnsmýrina.
Nú vill Gísli Marteinn leggja Miklubraut í stokk frá Kringlumýrarbraut að Rauðarárstíg og Kringlumýrarbraut frá Miklubraut að Bústaðavegi einnig í stokk. Athyglisvert og spennandi að sjá útfærsluna
Vonandi er þetta vísbending um að Sundabraut verði lögð í göng - en það er ekki skýrt í svokölluðum málefnasamningi meirihlutans - eins og fram kom í pistli mínum Mun borgarstjóri svíkja Reykvíkinga um Sundabrautargöng?
Þá hef bent á að það ætti að setja Réttarholtsveginn í jörðu, sbr. pistilinn Ökum frekar undir Réttarholtsveginn
Vill fá stokk frá Kringlumýrarbraut að Rauðarárstíg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:37 | Facebook
Athugasemdir
Já þegar helmingur borgarlandsins fer undir umferðarmannvirki að þá er ljóst að það þarf að finna aðrar lausnir, meðal annars stokkaumferð. Ég tel rétt að setja umfangsmikklar umferðaræðar í jörð sem og þar sem umferðaræðar skipta hverfum í tvennt. Á Miklubrautinni ætti síðan að byggja þétt.
Ingólfur, 28.1.2008 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.