Hefjið útboðsferli Sundabrautar í göngum strax!

Það er forgangsverkefni í samgöngumálum að hefja þegar útboðsferli vegna Sundabrautar og það Sundabrautar sem liggi í göngum. Annað er ekki ásættanlegt fyrir íbúa Vestur og Norðurlands - hvað þá íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Reykjavíkurborg og ríkisstjórnin þurfa að taka nú þegar ákvörðun um að leggja Sundabraut í göng - önnur lausn er ósættanleg - og hraða þeim framkvæmdum eins og unnt er.  Þetta er pólitísk ákvörðun sem hefur beðið í of mörg ár.

Minni á að Símapeningarnir eru til - og eiga að fara í verkið. 

Undirstrika að ákvörðunin er ekki Vegagerðarinnar - eins og má lesa úr fyrri pistli mínum Vegagerðin og gömul stöð belja .


mbl.is Sundabraut útboðsskyld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú til mikið einfaldari og ódýrari leið til að laga innkomuna í Reykjavík, það væri vel hægt að rífa upp öll spæleggin í Mosfellsbænum og byggja tvö til þrjú mislæg gatnamót í staðinn fyrir þau. Síðan skylda sveitarfélög eins og Mosfellsbæ, ásamt öðrum sem þjóðvegur eitt liggur í gegnum, til að leggja sínar eigin innanbæjargötur sjálf. Ekki nota þjóðveg 1 sem tengibraut á milli hverfa.

Gulli (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband