Athyglisverð mótmæli í Teheran

Það er afar athyglisvert að sjá víðtæk mótmæli í Teheran daginn eftir að Khamenei æðstiklerkur varaði mótmælendur við að halda áfram mótmælum.  Þetta er einsdæmi í Íran á tímum klerkaveldisins og gæti boðað breytta tíma í Íran.

Hingað til hafa Íranir ekki vogað sér að ganga gegn fyrirmælum æðsta klerks klerkastjórnarinnar.

Þetta virðist ekki síst vera andóf ungu frjálslyndari kynslóðarinnar gegn þeirri íhaldssamari eldri.

Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu - en vonandi taka klerkarnir skynsamlega á málum og freistast ekki til að bæka niður andófið með blóði. En maður er samt smeykur um að það gæti orðið raunin.


mbl.is Óeirðir á götum í Teheran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Þetta er nánast nákvæmlega eins og þegar þeir komust sjálfir að völdum. the Saha beitti hernum og skaut á mótmælendur. þegar það gerðist var ljóst að það yrði alsherjar uppreisn og hann flúði.

Fannar frá Rifi, 20.6.2009 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband