Má ég frekar biðja um svarthvítan Bogart en ömurlegt eighties trash!

Má ég frekar biðja um svarthvítan Bogart en það ömurlega eighties trash sem við þrælar ríkissjónvarpsins höfum þurft að horfa á að undanförnu fyrri part kvölds á föstudags og laugardagskvöldum!

Það er alveg ljóst að drengirnir mínir - 8 og 11 ára - bera meiri menningarlegan skaða af amerísku ömurlegum eighties trash "fjölskyldumyndum" sem sýndar eru reglulega í í ríkissjónvarpinu - en flestum svokölluðum "ofbeldismyndum" eða myndum þar sem birtist brjóst eða tvö! (Ekki það að strákarnir mínir fela sig enn oní koddan þegar kossaflensið hefst!)

 Þá var nú betra  á gömlu góðu svarthvítu myndirnar - en þetta helv... rusl!

Kata - elsku Kata!

Misnotaðu nú pólitíska stöðu þína og "bannaðu" þetta drasl sem haldið er að fjölskyldunum í landinu í formi "fjölskyldumynda!" hjá RÚV - sem við þurfum að greiða fyrir fáránlegan nefskatt!

Settu frekar reglugerð um að það sé skylda að sýna vandaða svarthvíta mynd - td. með Bogart - á þeim tíma sem RÚV er að klæmast með ömurlegar gamlar amrískar "fjölskyldumyndir´" á föstudögum og laugardögum!

Elsku Kata - ég veit þú ert menningarlega sinnuð - útrýmum þessum andskota úr dagskránni!

PS. Kata - þessi svokallaða "tónlits" sem leikin er undir á hljómborð - gengur frá tónlistaráhuga meðalbarns á korteri!  Plís Kata!


mbl.is Loftnetssjónvarpið uppfært
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Sammála þettar er engum samboðið. Meiri metnað..

hilmar jónsson, 12.6.2009 kl. 22:43

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Hlynur, ég skil ekkert í þér að ákalla Kötu hér með dagskrárefni.

Farðu bara á Youtube og veldu þitt efni sjálfur.  Hér er t.d. tilvísun á fyrsta hluta myndarinnar The Maltese Falcon með Humphrey Bogart:

http://www.youtube.com/watch?v=Zx7tRtWU5WI&feature=PlayList&p=292D06218C54B1C1&index=0

Það vantar hljóð á byrjunina (kynninguna) en þetta er oftast í góðu lagi og gæðin ásættanleg. (Stilltu á HQ).

Haukur Nikulásson, 13.6.2009 kl. 07:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband