Stólarnir voru bara svo freistandi fyrir Samfylkingarfólk
27.3.2009 | 17:48
Það er einfalt af hverju Samfylkingin gerði ekki afdráttarlausar kröfur um breytingar á stjórnkerfinu. Samfylking vildi ekki breytingu á stjórnkerfinu í sjálfu sér heldur einungis að setja Samfylkingarfólk í þá stóla sem fyrir voru.
Núverandi forsætisráðherra gekk meira segja svo langt að hún braut lög þegar hún setti mann af til að koma Samfylkingarmanni í stólinn!
Ingibjörg Sólrún gekk líka dálítið langt í einkavinavæðingunni í utanríkisráðuneytinu.
Það er auðvelt að koma núna og segja - við hefðum átt - en það er bara of seint!
Átti að gera skýrari kröfur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sigurbjörg það má lengi böl bæta með því að benda á eitthvað annað. Ef Samfylkingin hafði eitthvað við kerfið að athuga hversvegna var því ekki breytt?
G. Valdimar Valdemarsson, 27.3.2009 kl. 22:20
Hvernig væri að framsóknarmenn hættu að agnúast út í aðra flokka og sýndu hvað þeir ætla að gera , ef þeir komast að ?
Þið eruð farin að hljóma eins og gömul plata , sem rispaðist fyrir áratugum !
Framsóknarflokkurinn er partur af því ástandi sem hér er í dag. Valgerður og búnaðarbankasalan verður ykkur dýr. Þess vegna hljómar þetta með stólasetu eins og brandari í ykkar munni !
JR (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.