Af toppnum hjá Mogganum í blogghlé

Undanfarna fjóra daga hef ég verið í efsta sæti yfir mest lesnu bloggara á mbl.is. Það var svoldið skemmtilegur áfangi að ná. Náði hins vegar ekki efsta sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík suður. Það var svoldið leiðinlegt að ná ekki þeim áfanga.

Hef núna bloggað nær daglega í 16 mánuði. Hef fengið rúmlega 300 þúsund heimsóknir.

Er orðinn dálítið þreyttur og þurrausinn.

Ætla því að taka mér frí frá blogginu út þessa viku.

Legg vonandi eitthvað gáfulegt í umræðuna í næstu viku. Eða ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Maður mun sakna þín Hallur minn enda ertu sannarlega góður bloggari.

Hilmar Gunnlaugsson, 9.3.2009 kl. 22:51

2 Smámynd: Rannveig H

Ég mun sakna þín Hallur þú ert eini framsóknarmaðurinn sem ég les blogg hjá að staðaldri. Eitt að því sem hefði hjálpað flokknum þínum að þú hefðir komist á lista og það hefðir þú gert ef lýðræðið hefði virkað í flokknum.

Rannveig H, 10.3.2009 kl. 07:38

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Duglegur Hallur. Það er gott að taka sér smá pásu öðru hvoru. Ég aftur á móti fæ afar fáar heimsóknir á mína auðmjúku bloggsíðu. Fæ þá að vera í friði með mitt bull.

Arinbjörn Kúld, 10.3.2009 kl. 08:45

4 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Ég held að það sé mistö að þú hafir ekki komist ofarlega á lista hjá Framsókn, þar sem ég tel að þú værir góð viðbót við þann hópinn.  Reynsla þín er mikil í fjármálageiranum og það er það sem þarf á þing í dag, "menn með vit".

Þú bara hvílir þig þessa viku og kemur síðan endurnærður aftur á bloggið og heldur ótrauður áfram. Vittu til, það á eftir að breytast mikið næsta þingár eftir kostningar. Það eru spennandi tímar framundan í pólitík.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 10.3.2009 kl. 09:42

5 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæll.

Helvíti... Svo þú ætlaðir fram í það 1. !!

Og Vigdís Hauksdóttir fékk það sæti, sem ég er ekki sammála um.

Ég er í suður og hefði kosið þig. En þar fór það að ég kjósi í suður fyrir Framsókn?!?

Sveinn Hjörtur , 10.3.2009 kl. 13:04

6 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Hafðu það gott og hvíldu þig á pólitíkinni í leiðinni

Guðrún Jónsdóttir, 10.3.2009 kl. 23:11

7 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Alltaf er Framsókn jafn seinheppin. Það gildir það sama um mig og þig:  Þeir vilja ekki bestu mennina.  Þú hefur bæði kjörþokka og hugmyndir og vit og vilja til að keyra þær áfram. Það sem fer með flokka - og er banabiti Framsóknar - er að innan þeirra verða til litlar klíkur utan um einstaka menn og hópa.  Af þeim sem eru í fyrstu sætum Framsóknar í Reykjavík er ES sá eini sem hefur sagt eitthvað um eitthvað á opinberum vettvangi svo tekið sé eftir (nb. innflytjendamál og fjölmenningarsamfélag). Aðrir: Eins og að kjósa autt umslag.  Kveðja.  Baldur

Baldur Kristjánsson, 17.3.2009 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband