Smellið hér og þá birtist yfirlit yfir fjölbreyttan feril Halls Magnússonar í námi, starfi og félagsstörfum
Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.
Stjórnarskrá Íslands á að byggja á frjálslyndi og umburðarlyndi, tryggja þegnum landsins örugg mannréttindi og beint lýðræði, skilvirka og lýðræðislega stjórnskipun, réttlátt og óháð dómskerfi og að landsmenn njóti allir ávaxtanna af nýtingu náttúruauðlinda landsins.
Í stjórnarskrá vil ég tryggja:
- Persónukjör og rétt til þjóðaratkvæðagreiðslna.
- Raunverulegan aðskilnað löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds.
- Að dregið verði úr miðstýringu ríkisstjórnarvaldsins.
- Nýjar grunnstjórnsýslueiningar í formi öflugra, sjálfstæðra og lýðræðislegra héraðsstjórna sem taki yfir sem stærstan hluta fjárveitingarvalds, framkvæmdavalds og samfélagslegra verkefni ríkis og sveitarfélaga.
Séra Baldur segir að ég sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
- September 2020
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
- Júlí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Útrásarvíkingana á válista...
22.2.2009 | 20:53
... enda eru þeir í útrýmingarhættu ekki satt?
Útrásarvíkingana á válista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Pistlar Halls Magnússonar
- Hallur á Eyjunni
- Stjórnarskrá Íslands byggi á frjálslyndi og umburðarlyndi
- Þjóðin ákveði samband ríkis og þjóðkirkju
- Öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum
- Frjálst val um búseturéttarleið, eignarleið og leiguleið
- Sjálfstæðara og sterkara Alþingi takk!
- Stjórnlagadómstóll Íslands
- Frelsi með félagslegri ábyrgð
- Eruð þið alveg ómissandi?
- Völd, verkefni og tekjur heim í hérað!
Stjórnlagaþing
- Viðtal á RÚV vegna stjórnlagaþings
- Um stjórnlagaþing
- Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands
- Táknmálskynning á stjórnlagaþingi
- Kosningaréttur vegna stjórnlagaþings
- Kjörseðill og kosning
- Aðferð við talningu atkvæða
- Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Leiðbeiningar um fyrirkomulag atkvæðagreiðslu utan kjörfundar sem´hefst 10. nóvember
- Umsóknareyðublað um kosningu í heimahúsi vegna veikinda, fötlunar eða þungunar
- Kynning á úthlutun sæta á stjórnlagaþing
- Ráðgefandi þjóðfundur í aðdraganda stjórnlagaþings
Áhugaverðir frambjóðendur til stjórnlagaþings
- Hallur Magnússon
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Gísli Tryggvason Talsmaður neytenda
- Freyja Haraldsdóttir
- Pétur Óli Jónsson
- Gunnar Grímsson
Stjórnarskrár ýmissa landa
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Þið Framsóknarmenn þurfið að gera upp við fortíðina og tengslin við þessa skipulögðu glæpastarfsemi manna eins og Ólafs Ólafssonar. Ólafur er nátengdur flokknum og hefur sponsorað kosningabaráttuna og fengið all nokkuð fyrir sinn snúð.
Vissulega eru gæfuhjólin nokkuð að snúast á sveif með ykkur Framsóknarmönnum síðustu vikur en þið verðið fljótlega aftur komin í útrýmingarhættu nema þig gerið upp þessa tíma og þá frekar fyrr en síðar.
Getur það verið að landráðamenn og þjóðníðingar séu enn að standa straum að flokksstarfinu og sponsori kosningabaráttuna sem er framundan?
Jón Kristófer Arnarson, 22.2.2009 kl. 21:38
Hvað viltu þú gera Hallur í sambandi við útrásarmenn og þeirra eignir. Ég ætla að fara eftir þessu þegar ég kýs næst
Guðrún Jónsdóttir, 23.2.2009 kl. 10:07
Jón Kristófer.
Ólafur Ólafsson er ekki í Framsóknarflokknum - og hefur held ég ekki verið - þá allavega ekki um mjög langt árabil.
Man ekki til að hafa séð manninn á samkomum flokksins þaum 25 ár sem ég hef staðið í þessu.
Guðrún!
Ég vil að frumrannsókn á málum þeirra verði hraðað - þeir sem grunur er að hafi brotið af sér fái stöðu grunaðs - svo unnt sé að nýta ákvæði laga um að frysta eignir þeirra.
Dómstólar sjá um afganginn.
Ég er ekki reiðubúinn að frysta eignir manna - engra - hægri vinstri án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um lögbrot.
Það er hættulegt foræmi að ríkisvaldið geti ákvarðað að geðþótta refsingar "af því bara". Slíkt hefur leitt til voðaverka víða um heiminn.
Skil hins vegar tilfinningar þeirra sem vilja láta frysta eignir auðmanna.
Reyndar er ég þannig að mér finnst betra að sekur maður gangi laus en að saklaus maður sé dæmdur.
Hallur Magnússon, 23.2.2009 kl. 11:56
Guðrún
Aðeins meira um eignir auðmanna.
Það var náttúrlega skansall hjá síðustu ríkisstjórn að etja ekki strax í október á sérstakan ríkissaksóknara á sambærilegan hátt og unnt var að gera í Baugsmálinu - með einu ´bréfi dómsmálaráðherra.
Ef það hefði verið gert þá hefði væntanlega verið unnt að kyrrsetja eignir auðmanna sem lægju undir rökstuddum grun um brot - strax í nóvember og desember.
Einhverra hluta vegna þá voru það hagsmunir Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að gera það ekki. Ekki gleyma nánum tengsla þessra flokka annars vegar við Landsbankamenn (Sjálfstæðisflokkur) og Glitni (Samfylking).
Hallur Magnússon, 23.2.2009 kl. 13:38
Reyndar hef ég alltaf sagt það sama Hallur að maður sé saklaus uns sekt er sönnun. En mér finnst orðið ansi mikið komið í ljós, sem vísar á sekt
Guðrún Jónsdóttir, 23.2.2009 kl. 14:10
Hallur, þá ert þú eini maðurinn í heiminum sem ekki gerir sér grein fyrir tengslum Ólafs við Framsóknarflokkinn.
Jón Kristófer Arnarson, 23.2.2009 kl. 19:58
Jón Kristófer.
Ólafur er ekki í Framsóknarflokknum - frekar en Jón Ásgeir er ekki í Samfylkingunni.
Hallur Magnússon, 23.2.2009 kl. 22:00
Ætlar þingmannsefnið Hallur Magnússon að skauta framhjá þessum kafla í sögu flokksins? Málið snýst ekki um aðild Ólafs að Framsóknarflokknum eða setu hans á almennum fundum, heldur tengsl flokksins við landráðamenn og þjóðníðinga.
Ólafur Ólafsson og S-hópurinn fengu mikinn auð úr hendi Framsóknarflokksins en styrkti í staðinn kosningabaráttu flokksins. (Veit um dæmi þar sem auglýsing var keypt dýru verði í blaði Framsóknarflokksins á Héraði en blaðið kom aldrei út). Þetta er það sem við í hinu Nýja Íslandi köllum spillingu. Auðvitað verðið þið að gera það upp við ykkar samvisku hvort þið ætlið að gera upp við þessa tíma. En hætt er við að þið lendið í sömu útrýmingarhættunni aftur ef þið látið það ógert. Frómt frá sagt þá sé ég ekki eftir Framsóknarflokknum þó hann fetaði slóð geirfuglsins.
Og Hallur, þó að aðrir skúrkar kunni að hafa styrkt aðra flokka þá bætir það afskaplega litið fyrir syndir Framsóknarflokksins.
Jón Kristófer Arnarson, 23.2.2009 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.