Stjórnlagaþing þjóðarinnar þjóðarnauðsyn
29.1.2009 | 15:50
Það er þjóðarnauðsyn að þjóðin kjósi sér stjórnlagaþing til þess að semja nýja stjórnarskrá. Alþingi hefur ekki verið treystandi til þess eins og dæmin sanna.
Á þetta hef ég nokkrum sinnum áður bent, td. Þjóðkjörið stjórnlagaþing móti stjórnskipan framtíðarinnar
Kosið í vor og í haust? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Facebook
Athugasemdir
Ég get því miður ekki séð að tillaga Framsóknarflokksins samræmist stjórnarskránni, því að hún gerir aðeins ráð fyrir að Alþingi -- eða auka-alþingi (hvað sem það er) -- geti samþykkt stjórnarskrárbreytingar, en ekkert er minnst á þjóðaratkvæðagreiðslu í henni.
Guðmundur (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 16:11
En nú spyr ég sem einn af sauðum þjóðarinnar: Er þetta ekki bara byrjunin á sömu kosningaloforðsþvælunum eins og gerist alltaf í kringum kosningar? Er einhvern tímann hægt að treysta fólki sem sest á alþingi?
eikifr (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 16:16
Guðmundur.
Bendi þér á að lesa frumvarpið sem Framsókn leggur fram. Þar kemur þetta allt fram.
Eikifr.
Nei, þetta er ekki kosningaloforðsþvælan - því það verður kosið um stjórnlagaþing í vor.
Hallur Magnússon, 29.1.2009 kl. 17:32
Já Hallur - það er þjóðarnauðsyn.
Arinbjörn Kúld, 29.1.2009 kl. 22:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.