Ætlar týndi Geir reyni að kveða niður Svörtulofta-Skottu?
4.12.2008 | 12:52
Geir Haarde er týndur ef marka má frétt www.dv.is! Ætli hann sé á Ströndum að leita liðsinni galdramanna galdrasetursins þar við að kveða niður Svörtulofta-Skottu?
Legg til að Svörtulofta-Skottu verði útvegað starf á Draugasetrinu þegar hún hefur verið svæld út úr Svörtuloftum - enda segist Skotta þurfa eitthvað að gera ef hún hverfur úr Svörtuloftum.
PS. Týndi Geir er fundinn! Hann er bara í vinnunni sinni við Lækjargötu - en ekki á Ströndum - en er haldin blaðamannafælni í augnablikinu - ef marka má www.dv.is.
Miserfitt að hætta í pólitík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:13 | Facebook
Athugasemdir
Já við skulum vona að Skotta fái að vera á draugasetrinu svo hefur henni gengið svo vel með framsóknardraugana tekur þá vonandi með sér.
Guðrún Vestfirðingur (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 13:05
Framsóknardraugarnir eru reyndar á útleið - en frísk og fjörleg Framsóknaræska að taka yfir!
Hallur Magnússon, 4.12.2008 kl. 13:09
Jæja, Hallur nuna er Valla farinn. Þið reynið nuna alveg i djöfulmoð að þvo af ykkur spillingarstimpilinn. Það er unnið við það dag og nætur, enda stutt i kosningar. Gangi ykkur vel.
P.s hef heyrt að vitissodabað hafi komið ser vel i þvottum af þessu tagi.
Hörður Mar Karlsson (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 20:50
Hallur þú varst flottur í Kastljósi, og allar útskýringar vel settar fram. Takk fyrir það.
Rannveig H, 5.12.2008 kl. 08:26
Hallur, Geir var ekkert tíndur, hann var bara að reyna að átta sig á hvernig hann ætti að svara nýjustu lygi Svörtulofta-Skottu um júní-símtalið. Ákvað síðan að best væri að muna bara ekki eftir því.
Og Hörður, það má Framsókn eiga að það er þó verið að koma á móts við ákall þjóðarinnar um endurnýjun. Annað en Valhallarpakkið sem situr sem fastast í ríkisstjórn og obinberum embættum og þykist ekkert hafa gert rangt, eða man það kannske bara ekki eftir því? Á sama tíma fær Samfylkingin á sig hvern stimpilinn á fætur öðrum enda eru þeir þægilegir stjórnarstólarnir, eða rígheldur bláa höndin svo fast í rassgatið á þeim að þau geti ekki staðið upp?
Alli (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 08:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.