Snjall þrýstingur Þingeyinga á Samfylkingu og ríkisstjórn!

Það er snallt hjá þingeyskum Samfylkingarmönnum að beita Samfylkingunni og ríkisstjórninni þrýsting með því að tvinna saman stuðning við ríkisstjórnina og kröfuna um að:

"...haldið verði áfram atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi og ekki kvikað frá þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið við uppbyggingu álvers við Bakka og nýtingu þeirrar orku sem er hér á svæðinu.  Með því móti verða til hundruð starfa sem nauðsynleg eru til að vega á móti því atvinnuleysi sem nú þegar er brostið á og mun aukast verulega á næstu mánuðum,"

Það er alveg ljóst að ef Samfylkingin heldur áfram að vinna af fullum krafti gegn uppbyggingu á Bakka - eins og hún hefur gert að undanförnu - þá fýkur stuðningur þingeyskra Samfylkingarmanna við ríkisstjórnina út í veður og vind. 

Það er reyndar skiljanlegt að þingeyskir Samfylkingarmenn séu hræddir við kosningar eins og staðan er nú þegar Samfylkingin gekk frá - í bili að minnsta kosti - uppbyggingu þessa mikilvæga fyrirtækis á Bakka.   Þeir myndu klárlega missa mann í kjördæminu við núverandi aðstæður.


mbl.is Lýsa stuðningi við Ingibjörgu og ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

já það er hætt við að samfó muni missa mann í þingeyjarsýslu á kostnað lýðskrumara framsóknar úr sömu sveit sem lofa .. og lofa.. og lofa .. og svíkja

Óskar Þorkelsson, 1.12.2008 kl. 11:44

2 identicon

Lífið er flókið í dag, auðvitað væri gott ef álver kæmi fyrir norðan, en hvað með Vestfirði eiga þeir endalaust að lepja dauðan úr skel???

Guðrún Vestfirðingur (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 11:53

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Tvinnað saman?  Mér fannst þetta afar lauslega rimpað og ekki þannig að það hafi tollað við sem skilyrði.

Sigurður Þórðarson, 1.12.2008 kl. 13:23

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Væri ekki eðlilegt að Þórunn myndi bjóða sig fram þarna og taka sinn dóm þar.

Óðinn Þórisson, 1.12.2008 kl. 17:16

5 identicon

Hallur, hvað er málið með álverið á Bakka? Hvers vegna þennan óskaplega þrýsting á að reisa álver sem allra fyrst? Er ekki hægt að bíða róleg eftir umhverfismatinu? Og hvað ef, á meðan beðið er, verði fundið upp annað efni, sem verður notað í stað áls í framtíðinni? Þá getur nýsköpunarverksmiðja risið á Bakka í stað álvers og Norður-Þingeyingar verða ofboðslega ríkir. En semsagt, fyrir norðan fer kjörfylgi Samfylkingar eftir því hvort fólk fái það sem það vill, þ.e. álverksmiðju sem allra fyrst eða ekki. Það verður þá, í ljósi þess, spennandi að sjá hvernig næstu Alþingiskosningar fara.

Nína S (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband