Grasrótin í Framsóknarflokknum vill aðildarviðræður að ESB!
4.11.2008 | 07:33
Grasrótin í Framsóknarflokknum vill aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Þetta staðfesti annars vegar fjölmennt kjördæmisþing Framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi og hins vegar Framsóknarfélag Akranes í ályktun sínum í gærkvöldi.
Framsóknarflokkurinn verður að útkljá Evrópumálin hið fyrsta. Því ber að flýta flokksþingi.
Þá er ljóst að kosningar verða í vor hvað sem Geir Haarde reynir að strögla í bráðabirgðaríkisstjórn sem hangir á bláþræði.
Ég hef hvatt til þess að Framsóknarmenn - sem eru afar öflugir um þessar mundir eins og fjölmennt kjördæmisþing sýnir - þrátt fyrir afhroð í skoðanakönnunum - flýti flokksþingi sínu.
Þar hef ég mælt með því að Guðni Ágústsson, Valgerður Sverrisdóttir, Siv Friðleifsdóttir og Magnús Stefánsson- sem öll sátu sem ráðherrar í síðustu ríkisstjórn - taki fyrir Framsóknarflokksins hönd ábyrgð á mögulegum þætti Framsóknarflokksins í núverandi efnahagsástandi og segi af sér.
Þetta fólk hefur á undanförnum áratugum lagt gífurlega mikið á sig í vinnu fyrir íslenska þjóð og fyrir Framsóknarflokkinn. Það hefur á mörgum sviðum lyft grettistaki og átt lykilþátt í að byggja upp atvinnu og velferð íslensku þjóðarinnar. Þau eru í hópi vönduðustu og bestu stjórnmálamanna Íslands.
En á sama hátt og þau bera ábyrgð á fjölda góðra mála sem ber að þakka, þá bera þau að einhverju leyti einhverja ábyrgð á núverandi efnahagsástandi - þótt meginsökudólgurinn sé Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin sem hefur gert allt rangt í efnhags- og bankamálum síðan Samfylkingin tók sæti í ríkisstjórn. Þar hefur Framsóknarflokkurinn reyndar varað við vitleysunni.
Því ber þeim að taka ábyrgðina og hætta - því engin persóna er stærri en lýðræðislegur stjórnmálaflokkur eins og Framsóknarflokkurinn. Það er nóg af öflugu fólki til að taka upp merkið að nýju fyrir nýja Framsókn - sem byggir á góðum og göfugum hugsjónum sem unnið hefur verið eftir í rúm 90 ár. Það sýnir td. öflugur og fjölmennur fundur í kjördæmasambandi suðvesturkjördæmis í gær.
En þótt ég hvetji fjórmenningana til að standa upp og taka ábyrgð, þá ítreka ég að þjóðin og Framsóknarflokkurinn stendur í mikilli þakkarskuld við þessa öflugu Framsóknarmenn sem hafa unnið af mikilli elju og fórnað miklu fyrir íslenska þjóð.
Vilja hefja aðildarviðræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta mjakast. Suðurland næst?
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 09:19
Já, þú segir fréttir Hallur!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 4.11.2008 kl. 10:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.