Ríkisstjórnarflokkabankar frekar en ríkisbankar?

Mér virðist allt stefna í að bankarnir verði ríkisstjórnarflokkabankar frekar en ríkisbankar! Á tímabili stefndi í að aðstoðarmenn ráðherra bæði Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks yrðu lykilmenn í stjórnum hinna nýju banka.

Jón Þór Sturluson hafði hins vegar vit á að ganga úr skaftinu á síðustu stundu!


mbl.is Þóra er formaður Nýs Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Þetta er gamalkunnugt mynstur. Við þetta höfum við búið undanfarna tæpa tvo áratugi Hallur.

Þórbergur Torfason, 12.10.2008 kl. 21:24

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Hélt menn hefðu lært!

Hallur Magnússon, 12.10.2008 kl. 21:31

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Mér finnast þessar athugsemdir þínar "Hall"ærisilegar.  Ríkisstjórn er að skipa bráðabirgðastjórnir til að bjarga málum... þú ert að verða svo leiðinlega vinstri grænn   Kannski verður þú bara í einhverri þeirra nýju stjórna sem taka við bönkunum í vikunni..þessar sem núna starfa verða aðeins í nokkra daga.

Jón Ingi Cæsarsson, 12.10.2008 kl. 21:34

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll.  Hallur það er horfið aftur til fortíðar,  en sumir eru skinsamari en aðrir,  ég á til dæmis bæði flokkskírteinin en orðin gömul en duga samt í þessa banka, nú er bara að slá á þráðinn til mín vanti þig fyrirgreiðslu.

Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 12.10.2008 kl. 21:41

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er hraðbyri að þróast út í einhverskonar fasisma, þar sem ríkisvaldið og atvinnulífið renna saman í eitt. Hjálp! Hjálp! Þetta boðar ekkert gott.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.10.2008 kl. 01:41

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nýji Landsbanki, Nýji Glitnir..... Fasismi!

P.S. Á morgun ætla ég að verða skuldlaus, þegar ég stofna nýja kennitölu á nafninu Nýji Guðmundur.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.10.2008 kl. 01:44

7 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Sammála þér Hallur.

Þetta er ekki góð byrjun. Vonandi endurskoða menn þetta þegar ráðið verður endanlega og farið eftir fagþekkingu, reynslu og hæfni umsækjenda alveg óháð flokkslínum eða kyni. Þjóðin á það inni að fá hæfasta fólkið þarna inn og nóg er nú til af hæfu fólki hér á landi. Þetta er nýtt tækifæri sem ekki má klúðra.

Kristbjörg Þórisdóttir, 13.10.2008 kl. 06:06

8 Smámynd: Hallur Magnússon

Jón Ingi.

Ég hef ekki áður verið kenndur við VG! Hins vegar margoft við Sjálfstæðisflokkinn - reyndar ekki undanfarna daga enda gagnrýni mín á þann flokk verið áberandi - og enn oftar við Samfylkinguna!  Ég á bara eftira ð vera tengdur við Frjálslyndaflokkinn hér á blogginu!!!  Er náttúrlega flokksbundinn Framsóknarmaður eins og þú veist,

En það er hins vegar áberandi hvað Samfylkingin er viðkvæm fyrir því þegar bent er á hvernig þau annars ágætu reglhlífasamtök hafa á stuttum tíma gengið langt í að koma flokksgæðingum sínum fyrir í kerfinu hér og þar - með skipulagsbreytingum og jafnvel nýjum nöfnum á oðinber ráð - bara til þess að koma sínum fyrir. Enda er Samfylkingin arftaki Alþýðuflokksins sem var duglegur í slíku á sinni tíð.

Þjóðsagan segir að Framsóknarflokkurinn hafi verið svona - en ljóst að sá flokkur fellur illilega í skuggann af Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk hvað þetta varðar - enda var Framsóknarflokkurinn duglegastur í að skipa annarra flokka kvikindi í stóla og stöður - þar til Valgerður tók fyrir pólitískar veitingar í utanríkisþjónustunni - sem Ingibjörg Sólrún tók reyndar upp aftur! (Sighvatur Björgvinsson, Svavar Gestsson, Guðmundur Árna Stefánsson, Þorstein Pálsson og fleiri og fleiri og fleiri!)

Það hefur nefnilega komið á daginn að Samfylking er fylking um stóla - ráðherrastóla og opinberar stöður. Enda lítið orðið um ýmis stefnumál - vegna ástar á ráðherrastólum.

Hallur Magnússon, 13.10.2008 kl. 07:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband