Loksins góðar fréttir í svartnættinu!

Loksins fáum við góðar fréttirí svartnættinu!  Guðmundur Guðmundsson og Óskar Bjarni Óskarsson munu þjálfa íslenska landsliðið fram yfir næstu ólympíuleika. Vonandi verðum við komin á sléttan sjó og  eigum fyrir farmiða og aðgöngumiða á handboltakeppni Ólympíuleikanna í Lundúnum 2012.
mbl.is Guðmundur samdi til ársins 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Jón Ásgeir, Stoðir og Baugur hafi á síðustu 3-4 vikum  næstum því strípað allt lausafé af Glitni. Lárus og Þorsteinn Már  reyndu að stoppa það en gátu ekki. Þeir voru eiginlega búnir að  missa stjórn á bankanum. Það var ástæðan fyrir því að Seðli vildi  ekki lána og kröfðust 75%. Ef þeir hefðu lánað eða ekki haft  afgerandi meirihluta þá hefðu peningarnir runnið áfram til Jóns.  Óánægja Þorsteins Más snýst um að hann vildi ekki að ríkið  eignaðist meira en 50% - fyrir utan það að hann tapar persónulega  miklum fjármunum.  Bréf Baugs og Stoða voru tekin út úr fjárfestingarsjóðum Glitnis í  gær og fyrradag. Samkv. sömu heimildum fer Salt Investmenst Robba  Wessmann á hausinn. Það gengur sú saga í bankaheiminum að fundir Björgólfs með DO og  Geir hafi ekki snúist um yfirtöku á Glitni heldur björgun  Landsbanka sem riði til falls. Feðgar séu búinir að setja nærri 60  ma nú þegar í Actavis og Eimskip fyrir utan það er Landsbankinn er  að fá sennilega vel á annað hundrað milljarða í hausinn í  gjaldþrotum fyrirtækja sem þeir hafa lánað til, s.s. Nýsis, spænska  fyrirtækis sem þeri fjármögnuðu, Askar capital, Icebank (sem er  gjaldþrota), Baugs, Teymis, 365 etc etc. Fyrir tveimur vikum voru  settar nýjar reglur um fyrirgreiðslu við viðskiptavini hjá Landsbankanum – sem sagt ekki lána neitt - mjög harðar reglur. Yfirtakan á Byr var plott frá Jóni Ásgeiri og öðrum hluthöfum - aðallega Saxbygg, sem gekk út á það að strípa Byr til að reyna að  halda lífi í Glitni. Þeir ætluðu að nota Byr eins og hræ sem refur  leggst á til að lifa af veturinn. Convenient fórnarlamb -  sérstakelga vegna þess að það var nógu mikið af sameiginlegum hluthöfum til að geta látið þetta ganga. Sjóður 1 - Glitnir Skuldabréf, fjárfestir til dæmis í skuldabréfum  fyrirtækja. Verðmæti sjóðsins 1. september var tæpir 48 milljarðar  króna, þar af voru skuldabréf fyrirtækja 57%. Stærstu skuldarar eða  útgefendur skuldabréfa sem sjóðurinn á voru þá Íbúðalánasjóður, FL  Group - nú Stoðir - og Glitnir. Sjóður 9 - Glitnir peningamarkaður - fjárfestir í  skammtímaverðbréfum. Verðmæti sjóðsins um síðustu mánaðarmót var rúmir 117 milljarðar króna - og stærstu skuldarar þar - Glitnir,  Straumur, Stoðir og Baugur. Þriðji sjóðurinn sem lokað var er sjóður 9.1 - Glitnir,  peningamarkaður, evrur. Verðmæti hans voru rúmir átta milljarðar um  síðustu mánaðarmót  og skráð skuldabréf fyrirtækja voru um  þriðjungur eigna sjóðsins.  Lokun þessara sjóða var ákvörðun  stjórnenda Glitnis, en hún var tilkynnt til Fjármálaeftirlitsins  eins og lög gera ráð fyrir. Það er alveg augljóst að Baugur hefur gefið út bréf sem Glitnir  hefur tekið inn í almenna sjóði í stórum stíl án nokkurrar tryggingar. Þrír sjóðir Glitnis, sem hafa verið lokaðir síðustu tvo daga, verða  opnaðir á morgun. Í tilkynningu frá Glitni segir, að óvissu um  skuldabréf í sjóðunum hafi verið eytt og þar sé nú ekki að finna  nein skuldabréf á Stoðir hf, sbr. http://www.m5.is/?  Það er semsagt verið að afskrifa skuldir Baugs til þess að þær  dragi ekki niður bréf almennra eigenda. Best stendur Kaupþing, en athygli vakti að hér fyrir utan var ansi  fjölmennur floti dýrra bíla fyrir kl. 8 í morgun. KV Adolf sem les þig  

adolf (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 14:20

2 identicon

...þú meinar: enn einn starfsmaðurinn flýr bankakerfið!

Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband