Ísbjarnarmálin og banaskotin táknræn fyrir ríkisstjórnina!

Ísbjarnarmálin eru táknræn fyrir ríkisstjórnina! Klúður Big Time! Einkennast af fumi og fáti. Ekkert nema japl, jamm og fuður! 

Fyrst aðgerðarleysi sem endar með banaskoti. Ekkert gert í kjölfarið til að undirbúa næstu krísu.

Aftur algjör ringulreið sem reynt er að redda fyrir horn með fjölmiðlafarsa. Þá er hlaupið til að funda um málið. Allt of seint. Ákveðið að vandamálið sé alþjóðlegt og hjálpin sótt til útlanda. Gengur ekki upp. Málið endar með banaskoti. Aftur.

Það er ekki furða að ríkisstjórnarflokkarnir séu farnir að æpa á hvorn annan. Það eru hefðbundin viðbrögð í sandkassanum þegar allir hafa klúðrað sínu. Æpa á vinina og kenna þeim um.

Munurinn er sá að ríkisstjórnin er ekki á leikskóla. Hún á að halda um stjórnartaumana. Sem hún gerir reyndar ekki. Þeir liggja lausir fram af hausnum á þjóðarfáknum.

Þjóðin óttast það helst að útreiðartúr ríkisstjórnarinnar á þjóðarfáknum endi með banaskoti. Örþrifaráðið verði að skjóta klárinn eins og ísbirnina. 

Hvað verður um ríkisstjórnina þá?


mbl.is Harðari tónn í garð samstarfsflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

 Hallur kíktu á fyrstu málsgr. 3ju og 16gr  villidýralaga

 Ráðherrann virðist líta á lögin sem marklaust plagg rétt eins og formenn ríkisstjórnarflokkana líta á skuldbindingu Íslands um að hlíta úrskurði mannréttindanefndarinnar
 en það mál var afgreitt í beinni

 

Sigurður Þórðarson, 18.6.2008 kl. 10:20

2 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Flottur pistill.

Magnús Þór Hafsteinsson, 18.6.2008 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband