Rúmur helmingur telur Valgerði bezta utanríkisráðherrann!

Valgerður Sverrisdóttir er með yfirburðastöðu í huga fólks sem bezti utanríkisráðherra undanfarinna ára ef marka má niðurstöðu viðhorfaskönnunar á vefnum! Um hádegisbil höfðu 52,4% þeirra sem höfðu svarað spurningunni "Hvaða utanríkisráðherra hefur staðið sig bezt á undanförnum árum?" valið Valgerði!

Langt á eftir Valgerði kemur Ingibjörg Sórún sem horfði á eftir Makedoníumönnum ganga út á leiðtogafundi NATO. Ingibjörg Sólrún fékk 18,1% atkvæða. Næstur kemur Davíð Oddsson með 12%, þá Geir Haarde með 9,6%. Halldór Ásgrímsson rekur lestina með 8,4%.


mbl.is Makedóníumenn ganga út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég tók að vísu ekki þátt í þessari skoðanakönnun þinni og veit ekki hve margir svöruðu. Þú hefur hins vegar náð þínu fram samkvæmt því sem lesa mátti út úr textanum þegar þú kynntir inn þessa könnun. - Veit ekki hvort ég á að óska þér til hamingju en samt....þú ert ánægður, það er fyrir mestu.

Haraldur Bjarnason, 3.4.2008 kl. 14:40

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Hallur Magnússon, 3.4.2008 kl. 14:43

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Þetta val segir mikið um lesenda hóp þessa bloggs   Framsóknarmenn upp til hópa gæti ég trúað..

Óskar Þorkelsson, 3.4.2008 kl. 16:56

4 Smámynd: Púkinn

Hjálp!

Manneskjan sem gerði sig að athlægi með hræðilegasta framburði á enskri tungu sem hefur heyrst hjá nokkrum ráðamanni. 

Púkinn, 3.4.2008 kl. 19:21

5 Smámynd: Birgir Þór Bragason

Æi Hallur vertu ekki svona blindur.

Birgir Þór Bragason, 3.4.2008 kl. 21:59

6 Smámynd: Hallur Magnússon

Framsóknarmenn eru þá ekki á eins köldum klaka og ég hélt - ef það eru daglega á bilinu 500 til 1000 Framsóknarmenn sem kíkja á bloggið!

Hæfni í utanríkisráðherramennsku fer ekki eftir framburði - heldur innihaldi og stefnu. Þar ber Valgerður af. Blindur maður gæti séð það!

Einhverra hluta vegna hefur könnunin dottið út! Reyni að koma henni inn aftur á morgun - ef ég kemst aftur í tölvu hér í höfuðstað Norðurlands!  Verð reyndar fyrst og fremst í fjallinu á skíðum á morgun! Því lítið bloggað um helgina.

Hallur Magnússon, 3.4.2008 kl. 22:33

7 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ertu nokkuð að spauga Hallur?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.4.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband