Dómsmálaráðherrann virðist vera sammála mér!
3.2.2008 | 19:49
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra virðist vera sammála mér um að rétt sé að koma á fót "þjóðsstjórn" Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Reykjavík, en í Sifri Egils sagði Björn að æskilegra hefði verið að breiðari hópur stæði að nýjum borgarstjórnarmeirihluta en nú er. Þegar litið er yfir borgarfulltrúahópinn kemur í ljós að breiðari meirihluti fæst ekki nema með samstarfi framangreindra flokka.
Í pistli mínum Þjóðstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík takk! sting ég upp á að Dagur B. Eggertsson yrði borgarstjóri og Hanna Birna yrði forseti borgarstjórnar. Ég er ekki viss um að dómsmálaráðherrann sé sammála mér í þessu - en ég vona að fleiri bætist í liðið með okkur Birni og hvetji borgarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks að mynda þessa nauðsynlegu þjóðstjórn,
Núverandi staða er vonlaus - borgarstjóri og meirihluti gersamlega rúinn trausti - og F listinn því ekki stjórntækur að óbreyttu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:25 | Facebook
Athugasemdir
Væri ekki svo vitlaust, það er svo mikilvægt að hafa gott fólk í nefndir.
En mér finnst dómharka þín mikil í lokinn og hvað með það að hann hafi ekki meint traust? Hlítur að fá að möguleika á að sanna sig.
Johnny Bravo, 3.2.2008 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.