Skíðað í Tindastól!
1.4.2007 | 17:21
Það var frábært að skíða með fjölskyldunni í Tindastól í dag. Snjórinn reyndar á hröðu undanhaldi, en nægur samt. Hitti fólk sem flúði Akureyri vegna veðurs- hafði verið í tvo daga þar og einungis komist tvær ferðir niður Hlíðafjall. Komust eins margar ferðir og þau lysti í Tindastólnum.
Gréta mín - 2 1/2 árs - fór nokkrar ferðir neðsta hluta brekkunnar. Viggó "guðfaðir" skíðasvæðisins tók ekki annað í mál en að lána henni skíði og skíðaskó. Ótrúlegt hvað þessi litlu kríli geta. Takk fyrir það Viggó!
Magnús 6 ára og Styrmir 8 ára fóru mikinn!
Þetta er fyrsta ferðin okkar á skíði í Tindastól - en örugglega ekki sú síðasta!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Gaman að heyra menn tala vel um þetta yndislega skíðasvæði, var einmitt að fjalla um það m.m. í bloggi um daginn.
Jón Þór Bjarnason, 2.4.2007 kl. 09:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.