Já, Seðlabankann á Ísafjörð!
26.3.2007 | 23:46
Pistill minn, Seðlabankann á Ísafjörð? hefur vakið nokkra athygli og hefur jafnvel verið vitnað til hans á vefsíðu hins skemmtilega vestfirska blaðs BB sem er mér mikill heiður.
Margir hafa spurt mig hvort ég meini virkilega að það ætti að færa Seðlabankann á Ísafjörð. Já, ég meina það virkilega. Geri mér grein fyrir að það eru ekki miklar líkur á að bankinn verði fluttur þar í einu lagi, en er eitthvað því til fyrirstöðu að færa einhvern hluta hans þangað?
Eins og fram kom í fyrri pistli mínum þá vinn ég í opinberu fyrirtæki sem er með starfsstöðvar bæði í Reykjavík og Sauðárkróki. Ég veit hvað starfstöðin á Sauðárkróki skiptir fyrir Skagfirðinga. Vestfirðingar eiga það inni hjá okkur að fá hluta af alvöru opinberu fyrirtæki flutt vestur til að styrkja samfélagið þar.
Opinber fyrirtæki eiga að flytja þann hluta starfsemi sinnar sem unnt er að flytja með góðu móti frá höfuðborgarsvæðinu út á land. Við eigum öll ríkisfyrirtækin - ekki bara við höfuðborgarbúarnir.
Athugasemdir
Þótt hugmyndin þyki skemmtileg er ekki þar með sagt að hún sé sett fram í gríni og galgopaskap. Í fullri alvöru: Seðlabankinn er kki fjölsóttur af almenningi, hnn er ekki þjónustustofnun í þeim skilningi. Launagreiðslur eru í hærra lagi. Í bankanum strfar fjöldi sérmenntaðs fólks. Þetta mundi verða bæ eins og Ísafirði mikill styrkur og útlátalítið fyrir aðra. Stórkostleg hugmynd og ég skil ekkert í því að stjórnmálaflokkarnir skuli ekki hafa tekið við sér.
Sigurður G. Tómasson, 27.3.2007 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.