Ég er sammála Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra um að það eigi að halda áfram byggingu tónlistarhúss enda missa líklega allt að 500 manns vinnuna ef framkvæmdum verður hætt, bæði þeir sem vinna beint við að reisa húsið og þeir sem hafa af því tekjur í afleiddum verkefnum.
En það á ekki að koma framkvæmdinni yfir á ríki og borg - heldur á Landsbankinn að halda áfram með verkið.
Það má ekki gleyma því að fyrir liggja rekstrasamningar til langs tíma vegna tónlistarhússins, þannig að það eru allar líkur á að aðrir aðiljar - mögulega erlendir - muni koma inn í verkið á síðari stigum.
Ef Landsbankinn er með múður - þá getur ríkið gripið inn í stjórn bankans - enda á ríkið allt hlutaféð!
Vill ljúka smíði Tónlistarhúss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:57 | Facebook
Athugasemdir
Þetta hljómar vel. Tónlistar- og ráðstefnuhúsið mun skapa gríðalega hagnaði fyrir Ísland með að gista mörg alþjóðaráðstefnu á kverju ári. Hugsaðu þúsund manna hópur sem kemur til Íslands í 3-4 daga, 20 eða 30 sinnum, á sumrin sem vetur.. þetta er bara gull fyrir hótel, veitingastaðar, leigubilar, verslanir, etc. Síðan en ekki síst, samsikpti milli íslendinga og aðra þjóða mun aukast sem er alltaf gott.
Reynir (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 00:28
Hér er bara minnst á atvinnu - en hvað með tónlistina sjálfa? Tilgangurinn með byggingu tónlistarhússins er ekki sá að skapa tímabundna atvinnu heldur vera langtíma aðsetur tónleika -fyrir utan ráðstefnunarnar og hótelið. Þetta er kjarni málsins.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2009 kl. 01:01
Það er bara enginn munur á því hvort ríkissjóður eða nýi Landsbankinn borga, þar sem ríkið á nýja Landsbankann. Það er bara spurning um vinstri vasa eða hægri.
Vilhjálmur Þorsteinsson, 5.2.2009 kl. 01:15
Hvernig væri nú að stjórnendur ríkisins hugsuðu aðeins
Jón (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 01:43
Einfallt reiknisdæmi
Ríkið tekur verkið að sér
Skilyrðir verktaka til að ráð til sín iðnaðarmenn af atvinnuleysisskrá(má skoða% hlutfall)
Sparnaður verður einhver.
Sigurður: Farið var af stað með háleitar hugsanir um tónlist og þeim hugusnum svo snúið yfir á peninga hliðina. Held að hér sé rétt farið með að í framtíð muni húsið verða fyrst og fremst notað sem ráðstefnu hús. Enda skortur á slíku. Hinsvegar er spurning hversu mikið af ráðstefnum menn ná til sín í núverandi heimsástandi
Kristján Logason, 5.2.2009 kl. 05:51
Best væri vissulega ef hægt væri að ljúka við þetta blessað tónlistarhús, þannig að það standi ekki um aldur og ævi næstu kynslóða sem einhverskonar "Hvítur Fíll", þ.e. ryðgaður minnisvarði um ofurhug og óraunsæi stjórnvalda -það verður víst nóg af slíkum hist og her um borgina. (Segi ekki um landið, því þar voru nú fæst stórvirkin áformuð)
Spurningin er hins vegar hvað sú draumsýn á að kosta -og á hvers kostnað hún á að vera ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 06:06
e.s. Reyndar sammála þér Hallur; Leyfum Landsbankanum að ljúka verkinu.
En -bíddu nú við- eigum við hann ekki núna ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 06:08
Hefur þetta eitthvað með útlit - niðurstöður fjárlaga að gera? Kannski líka AGS.
Jón Tynes (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 10:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.