Félagaskiptaglugginn er opinn!

Öflug Framsókn nýrra tíma er hafinn. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eru í tómu tjóni. Félagaskiptaglugginn er opinn. Straumurinn stendur til Framsóknar nýrra tíma.

Skráningareyðublaðið er hér: Inntökubeiðni í Framsókn nýrra tíma


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Þér fer lítið fram frá degi til dags. Það er hreinlega hryggilegt þegar vænstu menn tapa skyndilega glórunni. Framsóknarflokkurinn er jafn mengaður og áður. Það er að vonum. Kveðjurnar frá gamla draugnum sýna að ekkert hefur breyst.

Sigurður Sveinsson, 18.1.2009 kl. 10:49

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Það verður engin ný framsókn nema með því að formaðurinn komi úr Kópavogi.

Óðinn Þórisson, 18.1.2009 kl. 11:34

3 identicon

Já þetta er merkilegt.  Framsóknarflokkurinn heldur að það sé nóg að skipta um kennitölu eins og bankarnir hafa nú gert en þeir eru jafn gjaldþrota þrátt fyrir það og það sama gildir um Framsóknarflokkinn.
Fyrri ríkissjón var leidd af Framsóknarflokknum undir Halldóri Ásgrímssyni síðustu 2 árum og fyrir utan það báru þeir ábyrgð á viðskiptaráðuneytinu þar sem núverandi formaður gegndi. Stærstu mistök íslenskra efnahagsmála voru gerð á þeim tíma og það er lítið traustvekjandi að vilja ekki einu sinni kannast við það.

Það er dæmigert fyrir umræðu dagsins að koma ekki fram með neina áætlun hvernig koma okkur upp úr "skítnum".  Eiginlega dæmigert fyrir íslenska stjórnmálaumræðu að vilja heldur stinga höfðinu ofan í sandinn eins og strúturinn og tala um allt annað en það sem við þurfum að takast á við.

Eitt dæmið um þetta er að Evrópubandalagsumræðan sem því miður er engin lausn á okkar vandamálum. Við fullnægjum á engan hátt skilyrðum myntbandalagsins og það verða mörg ár í það. Annað er umræða um annan gjaldmiðil og það væri náttúrulega æskilegt en flestir sem velta þeim möguleika koma fljótlega auga á það að það verða lánadrottnar okkar sem ráða því. Ólíklegt að við fáum lánað til að taka upp €. Hættulegt einnig að taka upp annan gjaldmiðil án stuðnings seðlabanka viðkomandi lands og sérstaklega í þessari stöðu sem við nú erum. Við þurfum fyrst að ná út sveiflunni og stöðugleika ef við þá náum þeim. Að taka upp annan gjaldmiðil af vanefnum gæti haft ótrúlega alvarlegar afleiðingar.

Við fáum engin lán til að fjármagna fjárlagahalla upp á 160-200 miljarða meðan tekjur ríkisins slefa upp í 400 miljarða.  Fyrir þessu fáum við engin lán og til að fjármagna  þetta þarf væntanlega að yfirtaka erlendar eigur lífeyrissjóðanna, já svo illa er komið fyrir okkur.
Tekjur ríkisins hafa hrunið og verða kannski 2/3 af því sem áður var og útgjaldaliðirnir aukast og langstærsti liðurinn verður vextir og afborganir á erlendum lánum.  Mjög erfitt er að auka tekjurnar.  Þegar er skattahlutfallið hátt og aukin skattheimta verður erfið.  Þetta mun þýða ca. 45-50% samdráttur í ríkisútgjöldum og það er það sem ríkið þarf að láta sér nægja næstu árin og væntanlega áratuginn.

Gunnr (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 11:47

4 identicon

Framsóknarmönnum svipar til ánamaðka, grafa sig niður en koma upp á yfirborðið þegar rignir.

Enda ekki undarlegt, bakland og meiginstoðkerfi flokksins görspilltir fjárglæframenn, þjófar og siðspilltir.  

Nú ætla framsóknarmenn að slá sér upp í krísunni sem þeir kölluðu yfir okkur.

Guðmundur Björgvinsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 12:05

5 Smámynd: Hörður B Hjartarson

 Það á þó framsókn skilið að eftir að Alþýðuflokkur leið undir lok , þá er þetta spilltasti f(l)okkur s.l. fjörutíu ár miðað við stórasta stærð f(l)okkanna . Alltaf gott að vera í fyrsta sæti .

Hörður B Hjartarson, 18.1.2009 kl. 16:49

6 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Sammála Stefáni Hreiðarssyni losið ykkur við skemmdu eplin því það er ágætis fólk fyrir utan þau og viðurkennið að kreppan varð til í ykkar stjórn

Guðrún Jónsdóttir, 18.1.2009 kl. 17:27

7 Smámynd: Brattur

Það gleymir engin hve stór þáttur Framsóknarflokksins er í bankahruninu og kreppunni allri... Framsóknarflokkurinn ásamt Sjálfsstæðisflokknum einkavæddi bankana og er stoltur af því.... eftirfarandi eru úr ræðu Halldórs Ásgrímssonar á Viðskiptaþingi Verslunarráðs Íslands í febrúar 2005... Halldór Ásgrímsson er augljóslega stoltur af öflugum kaupsýslumönnum sem fjárfesta sem aldrei fyrr á framandi slóð, einkavæðingu bankanna og bjartri framtíð;

... það er ekki alltaf auðvelt að merkja það á umræðunni hér á landi að erlendis sé talað um Ísland og okkur Íslendinga af aðdáun og forvitni þegar talið berst að efnahagsmálum og viðskiptum. Að hér sé samfelldur hagvöxtur, lítið atvinnuleysi, ört vaxandi kaupmáttur og öflugt velferðarkerfi sem stendur öllum opið, óháð efnahag. Að héðan sæki öflugir kaupsýslumenn á ókunn mið og fjárfesti sem aldrei fyrr á framandi slóð til hagsbóta fyrir þjóð sína. Að hér ríki sannkallað góðæri og framtíðin sé einstaklega björt.

Við Íslendingar höfum uppskorið ríkulega, eins og við sáðum. Við tókum erfiðar ákvarðanir, sem oft voru pólitískt umdeildar, eins og uppbygging stóriðju, endurskipulagning sjávarútvegsins með kvótakerfi og einkavæðing bankanna, en staðreyndirnar tala sínu máli.

Brattur, 18.1.2009 kl. 19:44

8 identicon

Það segir meira en allt annað hvað framsóknarfólk skammast sín fyrir árin með íhaldinu, að þeir sáu ekki aðra leið en að skipta alveg um stjórn!  Það er þó altjent byrjun, en flokkseigendafélagið er enn til staðar. Það hefði verið miklu hreinna að raunverulegt samvinnufólk hefði sagt skilið við framsókn og eigendur flokksins, stofnað Samvinnuflokk Íslands og ekki þurft að burðast með fortíðardraug Framsóknar. Þegar (og EF, og það er stórt EF, af því að flokkeigendafélagið er í sama flokki og þetta fólk) breytt VERK sýna raunverulega breytta stefnu, þá verður hægt að taka mark á þessu nýja makeuppi Framsóknar. Ekki fyrr.

Hitt er annað mál að Samfylkingin þarf að taka til í sínum ranni til að enda ekki eins og framsóknarflokkurinn!

Eygló Aradóttir (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 20:01

9 identicon

Nú eigið þið bara eftir að skipta um kennitölu þá verður Framsókn "Nýja Framsókn". Ef einhverjir hefðu sýnt einhverja auðmýkt beðið afsökunar, þá hefðuð þið átt einhvern "séns". En gamli hrokinn og frekjan í Álgerði gerði ykkur ekkert gott.

Hörður Már Karlsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 20:42

10 identicon

AH gleymdi einu er ekki tilvalið að fara halda tölvunámskeið í flokknum Hallur áður en fleiri þurfa að segja af sér vegna vankunnáttu á tölvu. Þetta er bara smá pæling fyrst Bjarni svo formaður yfirkjörstjórnar.

Hörður Már Karlsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband