Ritstjóri DV að taka við þjálfun Fylkis í handbolta?

Hélt fyrst að Reynir Traustason fyrrverandi sjómaður - eins og ég (reyndar ekki nema þrjú sumur - eitt jólafrí og tvö páskafrí)  - og núverandi og næstum fyrrverandi ritstjóri DV væri að taka við þjálfun Fylkis í handbolta. Fannst það ekki klókt af Fylkismönnum - því þótt Reyni Trausta sé margt til lista lagt - þá vissi ég ekki til að handbolti væri ein af sterkum hliðum Reynsi Trausta!

Ástæðan fyriþessu var náttúrlega mynda af Reyni sem aðeins neðar á síðunni - en var reyndar við fréttina: Reynir biðst afsökunar !

Reyndar hélt ég að það væri ekki heldur sterkast hlið Reynis Traustasonar að biðjast afsökunar!

En þegar ég hugsaði málið aðeins lengra - þá held ég að hinn frábæri Víkingur - Reynir Þór Reynisson - sem er að taka við þjálfun Fylkis - gæti styrkt þjálfarateymið verulega með Reyni Trausta - því hann er soddan baráttujaxl! 

Þótt hann hafi verið tekinn í bólinu með eigin bragði af "litla blaðamanninum" - og beðist afsökunar opinberlega - þá gefur hann ekkert eftir í vörninni - hvað þá sókninni!


mbl.is Reynir tekur við þjálfun Fylkis
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Athyglisverð hugmynd hjá þér Hallur.  Sérstaklega ef hann tæki eigendur DV með sér og leyfði þeim að ráða hvernig liðið spilaði..  Steinliggur (þá líklegast í netinu):

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 21:39

2 Smámynd: Óþekki embættismaðurinn

Hallur gamli Árbæingur að þú sért að leggja Reyni Trausta við Fylkisliðið er hneysa !  En þetta var bara rangur misskilningur !

Óþekki embættismaðurinn, 17.12.2008 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband