Björgvin G. ráðherra upp á punt fyrir Ingibjörgu Sólrúnu!
6.12.2008 | 14:15
Björgvin G. var greinilega hugsaður sem ráðherra upp á punt hjá Ingibjörgu Sólrúnu og væntanlega skipaður til að setja dúsu upp í vin minn Össur Skarphéðinsson - sem reyndar var einnig lengst af árinu hafður út í kuldanum af Ingibjörgu Sólrúnu sem vill greinilega halda í alla þræði innan Samfylkingar og utan með hjálp einkavina sinna.
Það er ekki nema von að bankamálaráðherrann hafi verið gersamlega eins og kálfur úti á túni eins í umræðunni í bankamálaumræðunni.
Mér hefur líkað vel við Björgvin og haft á honum álit. Það var reyndar fokið út í veður og vind vegna hraksmánlegrar framgöngu hans og Geirs Haarde í bankahrunsmálinu - en sem betur fer virðist það vera vegna þess að hann fékk ekki neinar upplýsingar. Hvorki frá Seðlabanka né alvöru ráðherrum í ríkisstjórninni.
Það er ekki nema von að það sé aðeins farið að hrikta í stoðum Ingibjargar Sólrúnar innan Samfylkingar!
... og ríkisstjórnarinnar - 65,5% styðja ekki ríkisstjórnina!
Björgvin: Spurningarmerki við Glitnisatburðarás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:02 | Facebook
Athugasemdir
Var ekki Björgvin í innsta koppi hjá eigendum Glitnis og kallaðar þar inn á teppið þegar Glitnis málið stóð sem hæst um miðja nótt?
Fannar frá Rifi, 6.12.2008 kl. 14:40
Eitthvað sem "eigendunum" þótti bara sjálfsagt. Enda gera fíklar sér sjaldan grein fyrir þegar í þrot er komið.
Júlíus Björnsson, 6.12.2008 kl. 15:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.