Enn hafa ASÍ og SA frumkvæði að efnahagsaðgerðum - ekki ríkisstjórnin!
11.11.2008 | 07:25
Enn einu sinni er það verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur sem taka höndum saman við að vinna að raunhæfum efnahagsaðgerðum - en ekki ríkisstjórn Íslands. Alveg ér það merkilegt að það eru ekki stjórnmálamennirnir heldur aðiljar vinnumarkaðarins sem eru í fararbroddi á því sviði.
Þótt núverandi ríkisstjórn hafi verið sú allra skelfilegasta hvað varðar aðgerðarleysi í efnahagsmálum - þá er ég ekki einungis að ræða um hana í þessu sambandi - þetta á einnig við fyrri ríkisstjórnir.
ASÍ og SA vinna að þjóðarsátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hallur... ég veit ekki hvort þú veist það en það er hlutverka SA og ASÍ að semja á vinnumarkaði.. og slíkt hefur alltaf verið hluti að efnahagsumhverfi á Íslandi....
Ég held að væri ráð að þið framsóknarmenn hefðuð vit á að þegja þegar kemur að því að ræða stjórn efnahagsmála... væni minn.
Jón Ingi Cæsarsson, 11.11.2008 kl. 07:34
Jón Ingi,.
Sumum ferst ...
Hallur Magnússon, 11.11.2008 kl. 08:01
.... 20% raunhækkun á fjárlögum sem varð eins og olía á verðbólgubálið
.... algjört aðgerðarleysi í efnahagsmálum mánuð eftir mánuð - þrátt fyrir ábendinga allra - já allra málsmetandi aðilja utanlands og innan um nauðsyn aðgerða
... allt - já allt gert rangt þegar stórbankakreppan kom upp - auk þess sem stjórnvöld vissu af hættunni fyrir langa lönguog gerðu ekki neitt.
... klúður aldarinnar þegar bankamálaráðherrann virðist hafa lofað Bretum heldur betur upp í ermina á sér vegna IceSave - loforð sem virðist ætla að koma okkur á kaldan klaka á alþjóðavettvangi til langframa.
... Ef ég notaði skilgreindingar breska Samfylkingarmannsins Gordon Brown - þá myndi ég væntanlega kalla Samfylkinguna efnhagsleg hryðjuverkasamtök - en þar sem ég er Framsóknarmaður þá læt ég það vera!
Hallur Magnússon, 11.11.2008 kl. 08:41
Hallur er haldinn sömu forblindan á atburðarás síðustu ára og formaður hans... hinn framfarasinnaði Guðni Ágústsson.... og ég geri bara ráð fyrir að það sé ólæknandi.
Jón Ingi Cæsarsson, 11.11.2008 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.