Afnemið uppgreiðslugjald á íbúðalánunum!
3.11.2008 | 10:29
Ríkisbankarnir eiga að afnema illræmt uppgreiðsluákvæði á íbúðalánum sínum þannig að þeir sem vilja greiða lán sín upp hraðar en skilmálar segja til um geti gert það án aukagjalds. Hið illræmda uppgreiðslugjald var slæmur gambítur bankanna á almenning.
Þá er vert að minna ríkisstjórnarflokkana á að þeir lofuðu að afnema stimpilgjöld af íbúðalánum. Væri ekki nær að gera það núna - og hækka hámarkslán Íbúðalánasjóðs verulega?
Kjörvaxtaálag Kaupþings til skoðunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heyr heyr!!!!!!!!!!
Gunnar (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 11:38
Tek undir þetta!
Marta B Helgadóttir, 3.11.2008 kl. 12:02
Tek undir þetta og sting uppá að hætt verði að nota vísutölu neysluverðs við útreikning lána í stað tekin upp Vísitala íbúðaverðs.Vísitala íbúðaverðs taki mið af meðalverði selds íbúðafermetra samkvæmt þinglýstum kaupsamningum á landinu öllu síðustu 36 mánuði [eða jafnvel síðustu 120 mánuði.Þá fylgja afborganir lækkandi og hækkandi íbúðaverði. Því lengra miðmiðunartímabil því minni sveiflur í afborgunum. Lánstíminn er líkast oftast á bilinu 20 – 40 ár.
JULIUS BJORNSSON (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 13:58
Bankarnir eru ennþá það innheimta uppgreiðslugjald af lánum í Íslenskum krónum með breytilegum vöxtum þrátt fyrir nýsett lög og bera við að lögin séu ekki afturvirk.
Er það eðlilegt?
http://www.althingi.is/altext/stjt/2008.063.html
99, 4.11.2008 kl. 03:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.