Verður Colin Powell aftur utanríkisráðherra Bandaríkjanna?
19.10.2008 | 14:27
Ætli Colin Powell verði aftur utanríkisráðherra Bandaríkjanna þegar Framsóknarmaðurinn Barack Obama tekur við í Hvíta húsinu? Ekki vantar Powell þekkingu og reynslu í utanríkismálum. Af hverju ekki?
Powell styður Obama | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hver er helsti munurinn á Framsókn og Samfylkingu?
Elías Theódórsson, 19.10.2008 kl. 15:04
Bjánaleg spurning Elías.
Og hefur ekkert með þetta mál að gera
Ingunn Guðnadóttir, 19.10.2008 kl. 15:44
Afhverju ?.. mundi ég frekar spyrja Hallur.. það búa þarna um 300 milljónir manna og alger óþarfi að ná í afdankaðan hermann og repúblíkana í þokkabót sem utanríkissráðherra.. þar að auki stóð hann sig frekar illa sem utanríkisráðherra bandaríkjanna.. komst í stöðuna vegna frægðarljómans frá gulf War 1 en ekki vegna hæfileika sinna sem stjórnmálamanns.
Óskar Þorkelsson, 19.10.2008 kl. 17:07
Colin Powell er virtur af mörgum á báðum vígstöðvum, ég tel það ekkert ólíklegt að hann eigi eftir að vinna eitthvað með Obama þegar að hann er orðin forseti.
Sporðdrekinn, 20.10.2008 kl. 00:26
Ef Obama er framsóknarmaður, þá er ég vinstri grænn. Hann er hins vegar einhver magnaðisti demókratinn frá því að Kennedy leið.
Gústaf Níelsson, 21.10.2008 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.