Spilum landsleik við Skota á Laugardalsvelli á hverju hausti!

Spilum landsleik við Skota á Laugardalsvelli á hverju hausti! Það hefur verið einstaklega gaman að sjá þessa frændur okkar í pilsunum og með skemmtilegu hattana sína  - í góðu skapi - og afar kurteisa!  Þetta eru sko engar fótboltabullur!

Ekki er verra að þeir eyði eitthvað af aurunum sínum á öldurhúsum borgarinnar. Þá hlýtur koma þeirra að hafa haft góð áhrif á hótel og gistiheimili borgarinnar!

Ég væri til í svona Skotadaga á hverju ári :)

PS.  'Eg er samt ekki að segja að við eigum alltaf að sýna þá gestrisni að tapa fyrir þeim!


mbl.is Skotarnir drukku stíft á börunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þeir hafa sannarlega lífgað upp tilveruna

Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband