Framsóknarflokkurinn - er það ég?

Kunningi minn var að hringja og spyrja hvort Sjálfstæðismenn væru að tala um mig þegar þeir segja að Framsóknarflokkurinn hafi sent Sjálfstæðismönnum skilaboð um að þeir væru reiðubúnir til viðræðna um nýjan meirihluta!

Ekki veit ég um það og veit reyndar ekki til þess að Framsóknarflokkurinn hafi sent Sjálfstæðisflokknum slík skilaboð - enda ekki innsti koppur í búri á þeim bæ.

Hins vegar get ég persónulega ekki annað en gengist við bloggi mínu í gær: Hanna Birna - hringdu í Óskar!

Kannske eru menn að vísa í þetta!!!

En ég er hins vegar alveg örugglega ekki Framsóknarflokkurinn!


mbl.is Frumkvæði frá Framsókn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Ja hérna, Hallur! Þú hefur mikið á samviskunni ef þú þvælir Óskari inn í það hlutverk að losa íhaldið úr snörunni. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 13.8.2008 kl. 17:59

2 Smámynd: Björgmundur Örn Guðmundsson

Ef ég væri fréttamaður þá væri ég búinn að leyta uppi Alfreð...:)

Ef Sjálfstæðisflokkurinn hangir einhvers staðar í snöru þá er Alfreð ekki langt undan.......

Kv.BÖG

Björgmundur Örn Guðmundsson, 13.8.2008 kl. 18:34

3 Smámynd: Gísli Tryggvason

"L'etat - c'est moi" sagði annar sólkonungur en sá er nú situr.

Gísli Tryggvason, 13.8.2008 kl. 22:38

4 identicon

Skrifaði einmitt eftirfarandi athugasemd við frétt Eyjunnar um málið í gær:

Sagði ekki Hallur Magg Hönnu Birnu að hringja í Óskar. Eru það ekki nægileg skilaboð frá þekktum framsóknarmanni til þess að menn geti fullyrt að frumkvæðið komi frá framsóknarmönnum?

Virkar spuni sjallanna annars ekki þannig?

lesandi (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband