Ólafur Friðrik ræður Jón Ólafsson vatnsráðgjafa Reykjavíkur!
13.8.2008 | 12:05
"Ólafur Friðrik borgarstjóri hefur ráðið Jón Ólafsson vatnsráðgjafa Reykjavíkur. Hlutverk hans verður að fara yfir vatnsmál Reykjavíkurborgar. Jón mun hafa aðstöðu í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur."
Eitthvað á þessa leið gæti frétt um næstu ráðningu borgarstjórans ef hann heldur áfram á þeirri braut sem hann hóf með því að ráða til starfa Gunnar Smára Eglisson - Baugspenna no 1.
Ólafur Friðrik virðist vera að ögra Sjálfstæðismönnum eins og hann mögulega getur með nýráðningum í Ráðhúsið. Sjálfstæðismenn hafa líklega ekki átt erfitt með að kyngja ráðningu Jakobs Frímanns, en Gunnar Smári hefur örugglega verið stór biti - og óþægilegur. Ólafur Friðrik gæti fullkomnað niðurlæginguna með því að fá Jón Ólafsson til liðs við sig.
Er von að Sjálfstæðismenn séu að verða þreyttir á kallinum!
Vilja breytingar á meirihlutasamstarfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:19 | Facebook
Athugasemdir
Þú ert genginn af göflunum Hallur minn, viltu virkilega fá Vatnsmýrasamkeppnina upp á borð aftur eða Framsókn í Faxaflóahafnir til að rústa Reykjavíkurhöfn.
Sturla Snorrason, 13.8.2008 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.