Árni Páll tekur af skarið í efnahagsmálunum!

Árni Páll Árnason virðist eini þingmaður Samfylkingarinnar sem eitthvað vit og einhverja skoðun hefur á efnahagsmálum. Það er helst að Ágúst Ólafur Ágústsson hafi eitthvað til málanna að leggja.

Árni Páll er í drottningarviðtali í Markaði Fréttablaðsins í dag.  Yfirskriftin er "Með stefnuleysi er vandanum viðhaldið". Þarna hittir Árni Páll naglan á höfuðið - og er greinilega að gagnrýna stefnuleysi eigin ríkisstjórnar í efnahagsmálum á undanförnum misserum.

Þar fer hann skilmerkilega yfir stöðuna í efnahagsmálum, greinir hana af skynsemi og kemst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórnin þurfi að marka nýja langtímastefnu með hliðsjón af breyttum aðstæðum. Þá undirstrikar Árni Páll að fleiri stoðir þurfi undir efnahagslegan stöðugleika á Íslandi en gengisstöðugleika.

Margt fleira er bitastætt í viðtalinu - sem ætti að vera skyldulesning ráðherra ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ríkisstjórnarfund!

Það væri vonandi að Árni Páll og "tvílembingarnir" Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson taki höndum saman og vinni skynsamlega efnahagsstefnu fyrir ríkisstjórnina í stað þess ráðaleysis sem hefur ríkt. Þetta eru þeir einu innan ríkisstjórnarflokkana sem virðast hafa áræði til að taka á efnahagsmálunum og ekki er það verra að margt af því sem Árni Páll, Bjarni og Illugi hafa sett fram er afar skynsamlegt - þótt ég sé ekki sammála öllu eins og gengur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Bergz

"Árni Páll Árnason virðist eini þingmaður Samfylkingarinnar sem eitthvað vit og einhverja skoðun hefur á efnahagsmálum."


Ja, sérstaða hans er a.m.k. sú að hafa skoðun. Þar sker hann sig all verulega úr hópi félaga sinna sem þora helst ekki að tjá sig nema taka skoðanakönnun fyrst.

Snorri Bergz, 6.8.2008 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband