Af hverju ekki að bjarga því sem bjargað verður hjá REI?

Það hefði verið nær að bjarga því sem bjargað verður með því að starfsmenn REI hefðu haldið áfram með verkefni þau sem REI hefur komið að. Ekki láta yfirstjórn verkefnanna í hendur ráðvilltra stjórnmálamanna sem flestir virðast vel undir meðallagi í hæfni til reksturs og stjórnunar miðað við þann ótrúlega skaða sem þeir hafa náð að vinna á ótrúlega skömmum tíma!

Ég hef verið hlynntur því að lýðræðislega kjörnir fulltrúar kæmu að yfirstjórn fyrirtækja í almannaeigu og að ákveðin fyrirtæki yrðu áfram í almannaeigu.

En klúðrið kring um REI hefur orðið til þess að ég efaðist á tímabili um þá aðferð.

Ef ekki hefði verið fyrir þróun á ýmsum stöðum í einkageiranum þar sem almannahagsmunir eru ríkir, þar sem stjórnendur og eigendur sem ekki eru lýðræðislega kjörnir heldur starfa í skjóli auðs síns og ákvarðanir hafa yfirleitt verið teknar gegn almannahagsmunum en með sérhagsmunum, þá væri ég búinn að afskrifa þetta form.

Mín skoðun er nú sú að við verðum bara að vanda betur vali á lýðræðislega kjörnum fulltrúum okkar!

En í tilfelli REI - þá er klúðrið svo algjört að það nánast sést frá tunglinu! Stjórnmálamennirnir þar hefðu átt að sjá sóma sinn í að draga sig til baka og fela starfsmönnunum að halda áfram á sínum forsendum - frekar en að halda sirkusnum áfram og klúðar málum endanlega.

Kosturinn við þetta er þó sá að kjósendur virðast ætla að taka af skarið og refsa þeim sem bera ábyrgð á REI klúðrinu - ef marka má skoðanakannanir!  Vandamálið er bara það að sú refsing gæti komið allt of seint!!!


mbl.is Buðust til að taka yfir verkefni REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband