Kíló af kartöflum á 1250 krónur í Hagkaup!
29.5.2008 | 23:21
Þeir í Hagkaup voru að reyna að plata inn á mig kartöflum á 1250 krónur kílóið! Mér fannst það aðeins of dýrt og skilaði kartöflubakkanum á kassanum. Varð að dröslast með kartöflurnar þangað því þær voru ekki merktar í hillunni.
Reyndar var um að ræða niðurbrytjaðar kartöflur í álbakka með einstaka bút af sætum kartöflum - svona 5% af heildinni - sem ætlaðar voru beint á grillið. Þeir kölluðu þetta líka kartöflusalat - en innihaldið var þó bara brytjaðar kartöflur - hefðbundnar og sætar - með smá jurtaolíu.
En mér er alveg sama - 1250 krónur kílóið!
Ætli doktor Gunni viti af þessu?
(Álbakkinn 400 gr. var á 499 kr)
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Ræktaður bara þínar kartöflur sjálfur, skerðu þær niður, sykraðu, grillaðu, éttu og ullaðu svo á Hagkaup.
Halla Rut , 29.5.2008 kl. 23:55
Góðu fréttirnar eru að þetta er ekki einokun, bara venjuleg viðskipti. Þarna eiga hugsandi menn að labba í burtu, og gera það vonandi.
Eins og sagt er um Lottó: skattur á heimskingja. Eða líka: "A fool and his money will soon be parted".
Kveðja, Kári
Kári Harðarson, 30.5.2008 kl. 09:19
yfirgengilegt verð....gott hjá þér að skila þessu
Hólmdís Hjartardóttir, 30.5.2008 kl. 11:13
Nískupúki! Það er Pólsk kona með lúsarlaun í ónýtum krónum og fimm börn á framfæri í evrum búin að puða við að sneiða þetta ofan í þig og pakka inn og þú tímir ekki að borga launin hennar. Hvurslax mannvonska er þetta maður?
Hrannar bróðir (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 14:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.