Össur er laxfiskur

Mér hefur lengi verið ljóst að vinur minn Össur Skarphéðinsson er laxfiskur. Össur staðfesti þetta í viðtali við 24 stundir í dag þegar hann sagði: "Ég er eins og urriðinn ..." 

Mér hefur reyndar oftar fundist Össur vera eins og laxinn - vill sífellt synda á móti straumnum - og taka kröftug stökk yfir flúðir og fossa sem á vegi hans verða.  Reyndar ganga þau heljarstökk ekki alltaf upp - heldur skellur hann hastarlega á vatnsborðið að nýju - hverfur í ánna - en safnar síðan kröftum og stekkur á ný - og á ný...

En kannske er hann eins og urriðinn. Eða eins og Össur segir sjálfur:"Ég er eins og urriðinn sem hefur mesta aðlögunarhæfni allra fiska. Ég get látið mér líða vel við hvaða kringumstæður sem er."

Það er reyndar nokkuð til í þessu hjá hinum fyrrum róttæka ritstjóra sem ég kynntist á svo skemmtilegan hátt á sínum tíma þegar við sátum saman á stjórnarfundum hjá Strætó 1986-1990.  Össur  hefur aðlögunarhæfni og getur látið sér líða vel við hvaða kringumstæður sem er. Það sýnir þessi fyrrum formaður Samfylkingarinnar sem hefur aldrei verið pattaralegri en einmitt nú í ríkisstjórn með höfuðandstæðingnum Sjálfstæðisflokknum.

Vona bara að Össur endi ekki eins og murta sem verði étinn af risaurriðunum í Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórnarsamstarfinu!

Gangi þér vel í Þingvallavatni ríkisstjórnarinnar - kæri vin - Össur laxfiskur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæll og kvitt fyrir lesninguna. Ég vona, og tel enga hættu á að Össur verði étinn. Hann er sleipur og getur sloppið. Ætli við Framsóknarmenn séum ekki Bleikja í þessari samlíkingu? Ef svo er þá komum við Murtunni til bjargar. Við vitum hvernig er að vera lítill....Og stór!

Ég vona að Össur félagi ásamt Birni Bjarnasyni noti tækifærið og gangi til fulls við að vernda stórurriðann í Þingvallavatni.

Kveðja,

Sveinn Hjörtur , 12.1.2008 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband