Fréttanefslausir fréttamenn fjalla ekki um Evrópumál
11.9.2009 | 21:13
Það fór vel á með Samfylkingarmanninum Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Framsóknarmanninum Olli Rehn stækkunarstjóra Evrópusambandsins á afar fróðlegum opnum fundi í hátíðarsal HÍ á miðvikudag.
Fyrirlestur Olli Rehn var afar fróðlegur og góður - og svör hann við spurningum enn betri og vandaðri.
Ég hef hins vegar beðið eftir fréttum af raunverulegum fréttum af fundinum!
Blaðamenn voru annað hvort ekki að hlusta á Olli Rehn - eða þeir skilja ekki hvað er mikilvægt og hvað ekki.
Aðalmálið og fréttin í hugum blaðamanna virðist vera að Olli taldi rétt að birta spurningalistann sem hann kom með til íslenskra stjórnvalda - sem utanríkisráðherra hafði reyndar ákveðið að gera - enda birtist hann á vef utanríkisráðuneytisins samdægurs!
Hins vegar voru hinar raunverulegri fréttir miklu mikilvægari - þótt blaðamönnum hafi yfirsést þær.
Það er greinilegt að fleiri sakna alvöru fréttaflutnings af fundinum.
G Vald bloggar um þetta undir fyrirsögninni
Eru bara "dropout" í íslenskri blaðamannastétt ?
Þar dregur hann fram raunverulega fréttapunkta af fundinum:
Fyrir liggur nánast kláraður efnahagspakki af hálfu ESB til stuðnings Íslandi. Þessi pakki er niðurstaða viðræðna íslenskra stjórnvalda og framkvæmdastjóra fjármála og gjaldeyrismála hjá ESB. Niðurstaða þessara viðræðna er umtalsverðar makro ökonómiskar tilfærslur frá ESB til Íslands, sem hellst má bera saman við efnahagslegan stuðning ESB við Serbíu.
ESB hefur undir höndum skjöl sem sýna fram á að íslenskar eftirlitsstofnanir beinlínis hvöttu bankana til að fara á svig við reglugerð um innistæðutryggingar. En það er sú reglugerð sem allt IceSave málið byggir á. Fréttamenn hafa engan áhuga á þessu, hafa ekki hirt um að velta því fyrir sér hvaðan þessi skjöl eru komin eða hvernig þau bárust ESB. Þetta eru allavega spurningar sem ég velti fyrir mér og hef mínar tilgátur um.
ESB bíður eftir niðurstöðu íslenskra rannsóknaraðila á hruninu en þegar skýrslur liggja fyrir mun sambandið setja af stað eigin rannsókn m.a til að vega og meta íslensku skýrslurnar og það hvort viðbrögð íslenskra stjórnvalda séu sannfærandi og í takt við alvarleika málsins.
![]() |
Uppstokkun í utanríkisþjónustunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)