Svandís inn Steingrímur út
23.1.2009 | 20:13
Ef VG ætlar að halda dampi fram yfir kosningar þá verður Svandís Svavarsdóttir að taka við sem formaður af Steingrími J. og leiða flokkinn í öðru Reykjavíkurkjördæminu á móti Katrínu Jakobsdóttur í hinu.
Ef VG ætlar að halda dampi fram yfir kosningar þá verður Steingrímur J. og Ögmundur að þekkja sinn vitjunartíma. Einnig gamli kommúnistinn Álfrheiður Ingadóttir og þreytta leikkonan Kolbrún Harðar.
Ekki það að mér sé ekki sama ef þau halda áfram. Þá mun VG dæma sig úr leik í Íslandi framtíðarinnar.
Steingrímur J. tapaði nefnilega síðasta tækifærinu til að verða ráðherra í ríkisstjórn með heimskulegum ummælum um lán Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í Kastljósi vikunnar. Næst síðasta tækifæri hans var nóttin eftir síðsutu kosningar.
En við Framsóknarmenn eru þó samt reiðubúnir til að verja minnihlutastjórn Samfylkingar og VG falli - ef flokkarnir eru reiðubúnir að strax verði ráðist í aðgerðir til að koma til móts við skuldsett heimili í landinu og bæta rekstrarskilyrði íslensks atvinnulífs.
Í því felist meðal annars að mörkuð verði stefna í gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar.
Jafnframt verði komið á stjórnlagaþingi sem semji nýja stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.
![]() |
Landsfundur VG í mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þjóðstjórn og kosningar í apríl
23.1.2009 | 18:16
Ég er afar sleginn yfir fréttum af veikindum Geirs Haarde og óska honum velfarnaðar í baráttu sinni við illvígan sjúkdóm. Ég hef alla tíð haft mikið álit á Geir - þótt ég hafi á stundum gagnrýnt hann hart - ekki síst á undanförnum vikum og mánuðum þar sem mér fannst hann ekki standa undir væntingum.
Ég held nú að skýringin sé undirliggjandi veikindi Geirs.
En nú hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sagt að þau Geir H. Haade, forsætisráðherra, verði nú að vinna í sameiningu úr þeirri stöðu, sem upp er komin í stjórnmálum eftir tíðindi dagsins.
Þetta er rétt hjá Ingibjörgu. En ég held að niðurstaða þeirrar vinnu eigi að vera myndun þjóðstjórnar og boðun kosninga í lok apríl en ekki maí. Það er besti kosturinn fyrir íslensku þjóðina á erfiðum tímum.
Veit að formaður Framsóknarflokksins sem hefur sýnt ótrúlegan styrk og frábært pólitískt innsæi undanfarna daga hefur boðið að Framsóknarflokkurinn veiti minnihlutastjórn Samfylkingar og VG brautargengi með því að verja slíka stjórn falli - og ég styð það - en tel vænlegra að mynda þjóðstjórn fram að kosningum og að kosningarnar verði í apríl - ekki maí
![]() |
Ingibjörg Sólrún komin heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Iðjuþjálfun fyrir utangarðsmenn í Reykjavík
23.1.2009 | 07:27
Utangarðsmenn munu á næstunni eiga kost á að njóta iðjuþjálfunar á vegum Reykjavíkurborgar í dagsetri sem Hjálpræðisherinn rekur úti á Granda. Iðjuþjálfunin er þáttur í metnaðarfullri stefnu Velferðarráðs í málefnum utangarðsmanna sem var eitt af fyrstu verkum sem ég tók þátt í að vinna að og samþykkja sem nýr varaformaður Velferðarráðs í haust.
Velferðaráð samþykkti samstarfssamning Velferðasviðs og Hjálpræðishersins um aðstöðu fyrir fagmenntaðan starfsmann og aðstöðu til uppbyggingar á iðju fyrir utangarðsfólk í Reykjavík í dagsetri Hjálpræðishersins fyrir utangarðsfólk.
Slík iðjuþjálfun er mjög mikilvæg til að auka lífsgæði utangarðsmanna í Reykjavík.
Stór hluti þeirra utangarðsmanna sem í borginni nýta sér þá mikilvægu aðstöðu sem Hjálpræðisherinn rekur fyrir þennan hóp á Granda. Þar er rúmgott húsnæði sem býður upp á mikla möguleika til þróunar á iðju fyrir utangarðsfólk á þeim stað sem utangarðsfólk dvelur. Þess vegna var talið rétt að Velferðasvið og Hjálpræðisherinn vinni saman að þessu verkefni, Velferðasvið leggur til fagmenntaðan starfsmann en Hjálpræðisherinn aðstöðuna.
Ég er mjög ánægður með okkur í Velferðarráði að taka þetta mikilvæga skref í þágu utangarðsfólks
![]() |
Hjálpræðisherinn og borgin í samstarf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |