"Íslenskt dómskerfi er bavíanadómskerfi!"
23.5.2008 | 23:49
"Íslenskt dómskerfi er bavíanadómskerfi!" sagði Árni Johnsen alþingismaður Sjálfstæðisflokksins á Útvarpi Sögu í morgun.
Ætli Björn Bjarnason viti af þessu?
Það voru fleiri gullmolar sem hrutu af vörum þessa gallvaska eyjapeyja í þættinum - gullmolar sem gætu haldið uppi bloggfærslum langt fram á sumar!
Var að heyra þáttinn endurfluttan meðan ég vaskaði upp áðan.
Er fyrst að komast að tölvunni núna - og ætlaði að blogga um Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra - en gat bara ekki sleppt þessu kommenti hans Árna!
Góður dagur hjá Jóhönnu í dag. Fyrst í þinginu þar sem fjallað var um húsnæðismál. Jóhanna mjög góð þar - og eins og alltaf að berjast fyrir almannahagsmunum! Reyndar tel ég að Jóhanna eigi að skoða fleiri möguleika í aðferðafræðinni við að styðja þá sem minna mega sín í húsnæðismálum - sbr. pistil minn - Er rétt að efla félagslegan hluta Íbúðalánasjóðs? - en markmið okkar eru þau sömu!
Síðan í tímabærri umræðu um barnavernd og barnaverndarlöggjöf - en eins og Jóhanna sagði þá hafa óljós skil milli ábyrgðar sveitarfélaga og ríkisvaldsins í barnaverndarmálum stundum orðið til þess að aðgerðir barnaverndaryfirvalda hafa ekki verið eins hnitmiðuð og ella - og svo gerir Jóhanna sér grein fyrir því að barnaverndarmál kosta!!!
Já, ég er enn einu sinni ánægður með Jóhönnu!