Þjóðstjórnarhugmynd Heimdallar bjarghringur Sjálfstæðisflokksins?
27.3.2008 | 17:05
Fjarvera borgarstjórans í dag var táknræn - þegar samþykkt var að kanna hagkvæmni lestarsamgangna - en borgarstjórinn hafði reynt að koma hugmyndum um lestarsamgöngur út af teinunum með því að fresta afgreiðslu tillögu þess efnis á síðasta fundi, enda ávísun á brottflutning flugvallarins úr Vatnsmýrinni sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins raun og veru vilja!
Sjálfstæðismenn, Framsóknarmenn, Samfylking og VG náðu saman um málið - sem gæti verið fyrsta skrefið í að mynda þjóðstjórn allra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur undir forystu ópólitísks borgarstjóra! Fjarvera borgarstjóra í dag gæti einnig verið tákn um slíkt!
En er þjóðstjórnarhugmynd formanns Heimdallar kannske bjarghringur Sjálfstæðisflokksins - og leið unga fólksins - Gísla Marteins og Hönnu Birnu - til að tryggja sér stöðu sem framtíðarleiðtogar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík?
Það er allavega skoðun G. Valdimars Valdemarssonar í athugasemd við pistil minn Sammála formanni Heimdallar - þjóðstjórn í Reykjavík!
G. Valdimar segir:
"En er það rétt að henda bjarghring til íhaldsins í þeirri stöðu sem þeir hafa komið sjálfum sér í. Það er skiljanlegt að menn hafi áhyggjur af því ástandi sem upp er komið í Reykjavík og vilji reyna að skipa málum þannig að líklegt sé til árangurs. En hver er staðan? Borgarstjóri er leppur Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar og situr í hans skjóli og Vilhjálmur hefur öll spilin á hendi þegar kemur að því að ákveða hver tekur við af núverandi borgarstjóra.
Það er ljóst að innan borgarstjórnarflokks íhaldsins er hver höndin uppi á móti annarri og amk þrír sækjast eftir því að verða borgarstjórar þegar kemur að þeim að taka við. Gísli Marteinn og Hanna Birna njóta takmarkaðs stuðnings í eigin röðum og hugnast greinilega ekki Vilhjálmi. Það er því líklegt að ef hann tekur ekki sjálfur stólinn muni hann setja Júlíus Vífil sem borgarstjóra sem einhverskonar málamiðlun í þeirri baráttu sem er innan borgarstjórnarflokksins. Júlíus Vífill hefði því forskot í komandi prófkjöri og væri líklegasti kostur sem borgarstjóraefni í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Allt þetta klúður skrifast á Sjálfstæðisflokkinn og það er ekki hlutverk minnihlutans í borgarstjórn að rétta þeim hjálparhönd við að klóra yfir klúðrið. Það eru augljósir hagsmunir hluta Sjálfstæðisflokksins að losa þá pattstöðu sem þeir hafa komið sér í og þaðan eru þessar raddir um þjóðstjórn í Reykjavík sprottnar. Ég segi nei takk, látum þá taka til eftir sig og leysa sín mál án hjálpar frá minnihlutanum."
Þetta kann að vera rétt hjá G. Valdimar!
En ég held samt að þjóðstjórn í borginni sé rétta leiðinn - þótt það þýði að bjarghring verði hent til Sjálfstæðisflokksins!
![]() |
Borgarráð skoðar hagkvæmni lesta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Íbúðalánasjóður einmana á íbúðalánamarkaðnum með langlægstu vextina!
27.3.2008 | 10:36
Íbúðalánasjóður er einmana á íbúðalánamarkaðnum eftir að bankarnir hafa nánast alfarið hætt að lána íbúðalán, enda vextir íbúðalána bankanna í himinhæðum og fara hækkandi!
Eftir situr á sínum stað Íbúðalánasjóður með langlægstu íbúðalánavextina - vexti sem hljóta að fara að lækka á næstunni þegar sjóðurinn fer í boðað útboð á íbúðabréfum - en miðað við ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði þá verður Íbúðalánasjóður að lækka útlánavexti sína verulega - hvað sem stjórnvöldum kann að finnast um það!
Fasteignakaupendum hlýtur að finnast ennþá vænna um Íbúðalánasjóð nú en áður - og þótti þeim nú ansi vænt um sjóðinn fyrir ef marka má viðhorfskannanir!
Nú væri reyndar gott tækifæri að afnema löngu úrelt viðmið útlána Íbúðalánasjóðs við brunabótamat!
Rök stjórnvalda fyrir að gera það ekki voru alltaf að það væri ekki hægt þegar þensla ríkti á fasteignamarkaði. Nú ríkir engin þensla á fasteignamarkaði - þannig að stjórnvöld hafa enga afsökun fyrir því að afnema ekki þetta fáránlega viðmið.
Jóhanna félagsmálaráðherra hlýtur að ganga frá reglugerðarbreytingu sem afnemur þetta illræmda viðmið nú næstu daga! Það yrði farsælt skref fyrir alþýðu manna - og ekki hvað síst unga fólkið!
![]() |
Bankar og sparisjóðir skoða vextina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |