Ætlar týndi Geir reyni að kveða niður Svörtulofta-Skottu?
4.12.2008 | 12:52
Geir Haarde er týndur ef marka má frétt www.dv.is! Ætli hann sé á Ströndum að leita liðsinni galdramanna galdrasetursins þar við að kveða niður Svörtulofta-Skottu?
Legg til að Svörtulofta-Skottu verði útvegað starf á Draugasetrinu þegar hún hefur verið svæld út úr Svörtuloftum - enda segist Skotta þurfa eitthvað að gera ef hún hverfur úr Svörtuloftum.
PS. Týndi Geir er fundinn! Hann er bara í vinnunni sinni við Lækjargötu - en ekki á Ströndum - en er haldin blaðamannafælni í augnablikinu - ef marka má www.dv.is.
![]() |
Miserfitt að hætta í pólitík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Svörtulofta-Skotta gefur viðskiptanefnd Alþingis langt nef
4.12.2008 | 12:14
Svörtulofta-Skotta stendur undir væntingum og gefur viðskiptanefnd Alþingis langt nef. Þrátt fyrir eðlislægan skort á óframfærni faldi Svörtulofta-Skotta sig nú bak við bankaleynd!
Svörtulofta-Skotta fer greinilega í manngreiningarálit! Hún hefur verið eins og ættarfylgja hjá forsætisráðherra og utanríkisráðherra á meðan viðskiptaráðherra hafði ekki séð Svörtulofta-Skottu bregða fyrir í heilt ár - eða frá því í nóvember 2007 þar til í september 2008!
Allir vita að Svörtulofta-Skotta er magnaður draugur - sem meðal annars vakti upp hinn þráláta Verðbólgudraug með skottulátum sínum. Þá er Svörtulofta-Skotta að ganga frá Sjálfstæðisflokknum dauðum!
Hætt er að við eigum eftir að sjá mikið til Svörtulofta-Skottu og óskunda hennar á næstunni - annað hvort í Seðlabankanum ef Geir Haarde lætur drauginn yfir sig ganga - eða á pólitíska sviðinu ef ríkisstjórnin reynir að kveða drauginn niður í Seðlabankanum!
Allavega er ljóst að Svörtulofta-Skotta er eins og aðrir íslenskir draugar - þekkja ekki sinn vitjunartíma. Jú, þar er nefnilega þess vegna sem þeir eru draugar!
![]() |
Davíð ber fyrir sig bankaleynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svörtulofta-Skotta komin á kreik!
4.12.2008 | 07:23
Það að kveða niður Verðbólgudrauginn er barnaleikur miðað við það að Svörtulofta-Skotta komist á kreik! Ekki furða að Geir Haarde skjálfi á beinunum!
![]() |
Davíð: Þá mun ég snúa aftur" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Pro bono" verkefni fyrir ráfandi ríkisstjórn!
4.12.2008 | 01:11
Ég hef það að reglu í sem ráðgjafi að vinna alltaf að minnsta kosti einu "pro bono" verkefni á hverjum tíma! ("pro bono "er svona lögfræðimál sem ég nota stundum til að slá mér upp og þykjast merkilegri en ég er - en það þýðir að vinna án greiðslu).
Ég var að ljúka "pro bono" verkefni í síðustu viku. Þess vegna þurfti ég að leita að nýju slíku verkefni sem ég vinn án greiðslu - og þótti við hæfi að leggja ríkisstjórninni lið!
En í stað þess að vinna tillögur og skýrslur á pappír - þá held ég að "pro bono" verkefni mitt þessa vikuna sé bara þátttaka í Íslandi í bítið í gær!
Slóðin er http://bylgjan.is/?PageID=1857
Ég get því farið ´´i nýtt "Pro bono" verkefni í næstu viku!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)