Smáhýsi fyrir heimilislausa tilbúin til notkunar
17.10.2008 | 19:54
Skoðaði smáhýsi fyrir utangarðsfólk sem nú eru reiðubúin til úthlutunar. Flott. Á næstunni verður væntanleg gengið frá leigusamningum fyrir íbúana - sem er heimilslaust fólk í neyslu. Fjögur smáhýsi. Skilst að verðandi íbúar séu afar ánægðir með hýsin,
Ánægður með að þetta atriði í nýsamþykktri stefnu í málefnum utangarðsfólk er að komast í gagnið. Verið er að vinna að öðrum atriðum í aðgerðaráætlun í málefnum utangarðsfólks.
Kyrrsetjum herþotur Breta á Keflavíkurflugvelli!
17.10.2008 | 08:51
Hinn konunglegi flugher hennar hátignar mun sjá um "varnir" Íslands í desember samkvæmt samkomulagi Íslendingar og NATO.
Ég legg til að við tökum vel á móti bresku orrustuflugmönnunum þegar þeir lenda - komum þeim fyrir á lúxushóteli í Reykjavík með góðan vasapening - en kyrrsetjum orrustuþoturnar þar til við höfum gengið frá okkar málum við Breta.
Við erum hvort eð er skilgreind sem hryðuverjasamtök í Bretlandi!
![]() |
Ísland í fjárhagslegri herkví Breta? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kyrrsetjum orrustuþotur Breta!
17.10.2008 | 07:49
Ég legg til að við tökum vel á móti bresku orrustuflugmönnunum - komum þeim fyrir á lúxushóteli í Reykjavík með góðan vasapening - en kyrrsetjum orrustuþoturnar þar til við höfum gengið frá okkar málum við Breta.
![]() |
Bretar sjá um varnirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)