Móttaka flóttamanna mikilvæg okkur Íslendingum!

Íslendingum ber skylda til þess að axla með öðrum þjóðum þá byrði sem flóttamannavandamálið er. Enda höfum við lagt okkar að mörkum við móttöku flóttamanna, þótt við eflaust gætum tekið við enn fleiri flóttamönnum en við höfum hingað til gert. Það er hvetjandi að fá svo jákvæða umfjöllun sem Reuters birtir um hlýjar móttökur sem hópur einstæðra mæðra sem fengu hæli á Íslandi hafa fengið að þeirra mati.

En það fer fjarri að þetta sé fyrsti hópur flóttamanna sem Íslendingar taka á móti með skipulegum hætti. Á nokkru árabili komu hingað á vegum Flóttamannaráðs hópar flóttamanna frá löndum fyrrum Júgóslavíu.

Ég átti því láni að fagna að taka þátt í móttöku slíks hóps er ég gegndi stöðu félagsmálastjóra og forstöðumanns Fræðslu- og fjölskylduskrifstofu Austur-Skaftafellssýslu á Hornafirði, en félagsmálaráðuneytið leitaði til sveitarfélagsins Hornafjörður um að taka á móti slíkum hóp í ljósi góðs árangurs sem sveitarfélagið hafði sýnt í reynslusveitarfélagsverkefnum á þessum tíma.

Það var mjög gefandi fyrir okkur öll sem að verkefninu kom - stuðningsfjölskyldum, Rauðakrossfólki á Hornafirði, okkur starfsfólki sveitarfélagsins og starfsfólki Rauðakross Íslands. Þá var þakklæti flóttamannanna ómælt - en flóttamennirnir lögðu sig mjög fram um að samlagast samfélaginu - það vildi vinna og vann vel - og lagði sig fram um að læra íslensku sem best á því ári sem flóttafólkið fékk massívan stuðning samfélagsins.

Dugnaður flóttafólksins var mikill - og ég fullyrði að koma þess hafði mikil og jákvæð áhrif á samfélagið á Hornafirði - þannig að allir voru betur settir eftir en áður.


mbl.is Hlýjar móttökur í köldu landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

John Edwards næsti forseti Bandaríkjanna

Ég hef trú á því að John Edwards verði næsti forseti Bandaríkjanna. Niðurstöður forkosninga í Iowa styrkja mig í þeirri trú. Þrátt fyrir að kastljósið hafi fyrst og fremst beinst að Hillary Clinton og Barack Obama í aðdraganda forkosninganna, þá nær Edwards öðru sæti og nær næstum 30% atkvæða. Hann er því búinn að stimpla sig rækilega inn.

Ástæða þess að ég tel John Edwards verða næsti forseti Bandaríkjann er í fyrst lagi sú að ég held að bandarískir kjósendur vilji skipta republikönum út úr Hvíta húsinu eftir hræðilega frammistöðu George W. Bush.

Í öðru lagi vegna þess að ég tel Bandaríkjamenn ekki enn hafa náð þeim áfanga í jafnréttisbaráttunni að þeir muni kjósa konu sem forseta - því miður.

Í þriðja lagi vegna þess að ég tel Bandaríkjamenn heldur ekki reiðubúna til að kjósa sér svartan mann sem forseta - því miður - sérstaklega ekki svartan mann sem ekki er hefðbundinn "Afro-American".

Í fjórða lagi þá held ég að  John Edwards hafi fulla burði til þess að gegna embætti forseta Bandaríkjanna.


mbl.is Huckabee og Obama sigruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband